Nokkrir starfsmenn bæjarins, aðallega stjórnendur og bæjarfulltrúar, hafa fengið heimatengingu sem gerir þeim kleift að vinna í gögnum sínum eins og þeir séu á vinnustað. Vinnustaður viðkomandi greiðir kostnað af heimatengingunni sem getur verið gjald fyrir ADSL-tengingu, gjald fyrir svonefndan VPN-aðgang sem er öryggisbúnaður sem kemur í veg fyrir að aðgangur notandans opni öðrum og óviðkomandi leið inn á netkerfi bæjarins og loks afnotagjald af svonefndum léttmiðlara sem gerir notandanum kleift að vinna í gögnum sínum á miðlægum gagnageymslum.
Heimatengingar
Fræðsludagatal
10.10.2013

