Stjórnendahandbók Akureyrarbæjar

Lífsspeki fisksins er nokkuð sem margir vinnustaðir Akureyrarbæjar hafa tileinkað sér að undanförnu. Lífsspekin felur í sér fjögur einföld boðorð sem fela

Flýtilyklar

Fiskurinn - einföld lífsspeki

Lífsspeki fisksins er nokkuð sem margir vinnustaðir Akureyrarbæjar hafa tileinkað sér að undanförnu. Lífsspekin felur í sér fjögur einföld boðorð sem fela í sér leiðir til þess að láta sér líða betur í vinnunni. Fiskur2

FISK boðorðin fjögur eru:

  • Að leika sér
  • Að velja sér viðhorf
  • Að gera viðskiptavinum/samstarfsfólki daginn eftirminnilegan
  • Að vera til staðar (vera þar)

Akureyrarbær hefur keypt tvær dvd myndir sem fjalla um lífsspeki fisksins.

Fyrri myndin fjallar um fisksalana á Pike Place fiskmarkaðnum í Seatle sem hafa það svo gaman í vinnunni að skrifstofufólk kemur í hádeginu til að horfa á þá vinna.

Seinni myndin heitir FISH! Vital Signs og fjallar um hvernig lífspeki fisksins er notuð á sjúkrahúsi.

goldfishEinnig er til bókin FISKUR! sem fjallar um lífsspekina og fisksalana.

Hægt er að nálgast myndirnar hjá starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar.

FISK lífsspekin:

  • Getur hjálpað fólki að skilja að viðhorf þess er alfarið þeirra val.
  • Hvetur einstaklinga til að ryðja hindrunum úr vegi á eigin ábyrgð.
  • Skapar vettvang fyrir skapandi hugsun og frjálst flæði hugmynda.
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:41
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16