Rammasamningar

Ríkiskaup sjá um að bjóða út og gera rammasamninga fyrir ríkisstofnanir og aðra áskrifendur. Opinberar stofnanir og sveitarfélög geta gerst áskrifendur að

Flýtilyklar

Rammasamningar Ríkiskaupa

Ríkiskaup sjá um að bjóða út og gera rammasamninga fyrir ríkisstofnanir og aðra áskrifendur. Opinberar stofnanir og sveitarfélög geta gerst áskrifendur að rammasamningunum. Rammasamningar Ríkiskaupa lúta sömu lögum og allir aðrir samningar um innkaup og geta áskrifendur keypt samkvæmt þeim þrátt fyrir að innkaupin fari yfir viðmiðunarmörk.

Akureyrarbær er áskrifandi að rammasamningum Ríkiskaupa.

Innan rammasamninga Ríkiskaupa eru 16 yfirflokkar sem eru jafn fjölbreyttir og þeir eru margir. Innan hvers yfirflokks er 1 eða fleiri undirflokkar. Þessa flokka má sjá hér.

Til þess að sjá kjör, vörulista, fréttir, verðbreytingar og innihald hvers samnings þarf að skrá sig inn á vef Ríkiskaupa. Aðgang að rammavefnum er hægt að fá hjá verkefnastjóra hagþjónustu á netfanginu valdisjons@akureyri.is. Verkefnastjóri hagþjónustu sendir út fréttatilkynningar í stjórnendahandbókinni þegar breytingar verða á rammasamningunum ásamt því að senda tölvupóst á stjórnendur.

Vörusjá er nýr innkaupavefur sem á að gera opinberum kaupendum kleyft að kaupa og nálgast ítarupplýsingar um vörur í rammasamningum Ríkiskaupa. Akureyrarbær hefur ekki hafið viðskipti á Vörusjá en vel er fylgst með þróun þess.

Smá ráðlegging að lokum: Kynnið ykkur rammasamningana vel því þar eru í boði ýmsir afslættir sem þið eigið rétt á að fá. Taka skal fram þegar keypt/pantað er að um aðild að rammasamningi sé að ræða. Farið einnig vel yfir reikninga áður en þið áritið þá og kannið hvort umsaminn afsláttur hafi ekki örugglega skilað sér.



Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:35
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16