Námskeið um stefnumótun

Námskeið um stefnumótun Fjallað er um áherslumun við stefnumótun samsteypu, málaflokks og stofnunar. Skoðaðar eru mismunandi aðferðir við mótun slíkra

Flýtilyklar

Námskeið um stefnumótun

Helgi Gestsson
Helgi Gestsson

Fjallað er um áherslumun við stefnumótun samsteypu, málaflokks og stofnunar. Skoðaðar eru mismunandi aðferðir við mótun slíkra stefna. Metið er mikilvægi áhrifagreiningar hagsmunaaðilahópa og jákvæðni starfmanna fyrir árangur af innleiðingu og framkvæmd slíkrar stefnu. Kynnt er aðferð til að virkja lykilstjórnendur í stofnunum til greiningar lykilþátta árangurs við endurmat framtíðarsýnar stofnunarinnar. Milli námskeiðsdaganna vinna þátttakendur með lykilstjórnendum sínum drög að stefnu fyrir stofnunina og málaflokkinn. Þær niðurstöður nota þátttakendur sem innlegg við hópvinnu seinni námskeiðsdaginn.

Leiðbeinandi: Helgi Gestsson lektor við Háskólann á Akureyri
Tími: Miðvikudagur 28. mars og miðvikudagur 25 apríl frá kl. 13-15.30 
Staðsetning: Húsið 4. hæð í Rósenborg
Þátttakendur: Allir þurfa að vinna að stefnumótun
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is


Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:32
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16