Námskeið um jákvæða sálfræði.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við BHM.
Jákvæð sálfræði hefur farið sem eldur um sinu um hinn Vestræna heim á síðustu 10 árum með nýja orðræðu og
nýjar áherslur í rannsóknum sem miðar að því auka heilbrigði og hamingju venjulegs fólks í daglegu lífi.
Nú liggur það fyrir að ytri aðstæður ráða litlu um hamingja okkar, heldur er það afstaða okkar, venjur og lífsstíll sem hafa
hvað mest áhrif á lífsgæði okkar. Það er líka ástæðulaust að fresta hamingjunni eða bíða eftir betri
tíð, lottóvinningi eða stöðuhækkun. Hamingjan er í okkar eigin höndum og það er tiltölulega auðvelt að auka hana í
lífi sínum með markvissum hætti.
Á námskeiðinu verður unnið með hagnýtar aðferðir úr smiðju jákvæðrar sálfræði sem hafa sannað gildi sitt
í rannsóknum. Kynntar verða 10 leiðir til að auka vellíðan og hamingju í daglegu lífi og verður sérstök áhersla lögð
á núvitund (Mindfulness) og hugarró.
Umsjón með námskeiðinu hefur Ásdís Olsen. Ásdís er menntunarfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands
á sviði lífsleikni. Hún hefur lagt sérstaka stund á jákvæða sálfræði undanfarin ár, lokið námi í
hugrænni atferlismeðferð og kennaranámi í núvitund (Mindfulness) frá Bangorháskóla.
Leiðbeinandi: Ásdís Olsen menntunarfræðingur
Tími: Fimmtudagur 9. febrúar frá kl. 12.00-16.00
Staðsetning: Lionssalur að Skipagötu 14
Þátttakendur: Allir á póstlistanum FRÆÐSLA
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is

