Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að kynna sér gerð áhættumats á vinnustöðum eða vilja bæta við sig þekkingu á því sviði. Kennd er aðferðin “Sex skref við gerð áhættumats” sem byggist á notkun vinnuumhverfisvísa/gátlista Vinnueftirlitsins. Farið er yfir 3 megin atriði áhættumatsins, þ.e. skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði, áhættumat og áætlun um heilsuvernd og framkvæmd hennar.
Nemendur læra einfalda og markvissa aðferð til að gera áhættumat. Hvert námskeið er 4 klukkustundir og byggist upp á fyrirlestrum, myndum, myndböndum og hópverkefnum.
ATH! kostnaði við námskeiðið verður skipt niður á deildir.
Leiðbeinandi: Guðmundur Kjerúlf sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu
Tími: Fimmtudagur 16. febrúar frá kl. 12.00-16.00
Staðsetning: Lionssalur að Skipagötu 14
Þátttakendur: Allir sem þurfa að gera áhættumat og þá sem vilja bæta hjá sér
vinnuumhverfið.
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is

