Hádegisfyrirlestur - Sveitarfélög sem vettvangur jafnréttisvinnu

Hádegisfyrirlestur - Sveitarfélög sem vettvangur jafnréttisvinnu Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á jafnréttisstofu, heldur fyrirlestur um sveitarfélög

Flýtilyklar

Hádegisfyrirlestur - Sveitarfélög sem vettvangur jafnréttisvinnu

Tryggvi Hallgrímsson
Tryggvi Hallgrímsson
Í jafnréttisslögunum er kveðið á um ríkar skyldur sveitarfélaga til að vinna að jafnréttismálum. Í erindi sínu á fjallar Tryggvi Hallgrímsson um þessar skyldur sveitarfélaganna og lýsir stöðu jafnréttismála eftir sveitarstjórnarkosningar 2010. Þá mun Tryggvi kynna vinnu Jafnréttisstofu við úttekt á stöðu jafnréttismála í sveitarfélögum. Hann mun leitast við að svara því á hvaða sviðum sveitar-, bæjar- og borgarstjórnir geti haft áhrif til að jafna stöðu karla og kvenna og hvernig lýsing á stöðu jafnréttis getur undirstrikað mikilvægi þess að sveitarfélög séu vakandi fyrir áhrifum jafnréttis á búsetu.

Samkvæmt jafnréttislögunum skulu sveitarfélög þróa og leggja mat á stefnumótunarferli þannig að sjónarhorn kynjajafnréttis sé á öllum sviðum fléttað inn í stefnumótun og ákvarðanir. Þá skulu jafnréttisáætlanir lagðar fram til samþykktar í viðkomandi sveitarstjórn eigi síðar en ári eftir sveitarstjórnarkosningar.

Tryggvi Hallgrímsson er félagsfræðingur og hefur MA gráðu í skipulagsheildum og stjórnun frá Háskólanum  í Tromsö í Noregi. Hann hefur starfað sem kennari við Háskólann á Akureyri og sem sérfræðingur á Jafnréttisstofu frá árinu 2008

Fyrirlesari: Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu
Þátttakendur: Allir á póstlistanum fræðsla. 
Tími: Mánudagur 20. febrúar frá kl. 12.30-13.30
Staðsetning: Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:27
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16