Tekin verða fyrir helstu grundvallaratriði við notkun Excel við alls konar útreikninga og úrvinnslu talna ásamt allri útlitsmótun skjala.
Námskeiðið verður haldið í fundarherbergi á 2. hæð í ráðhúsinu og þurfa þátttakendur að koma með fartölvur sínar með sér
Þátttakendur munu læra:
að búa til töflureiknisskjal (vinnubók) og rita inn tölur og texta
að opna töflureiknisskjal og breyta/eyða gögnum
aðferðir við að velja reit eða svæði
að flytja til eða afrita innihald reita
að búa til formúlur með reikniaðgerðunum fjórum, samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu
að setja upp eigin reikningsdæmi byggt á aðgerðunum hér á undan
að nota nokkur innbyggð reikniföll (AutoSum, Average, Max, Min og If)
að forsníða reit eða reiti, t.d. fjölda aukastafa, gjaldmiðilsmerki ofl. aðgerðir í „Format/Cells“
að vinna með jöfnun og stillingar texta innan reita
að útlitsmóta töflur, s.s. rammar og litir
að nota sjálfvirka útlitsmótun taflna
að bæta inn línum og dálkum
að bæta inn og eyða vinnublöðum
að raða gögnum vinnuskjals í stafrófsröð og eftir stærð (Sort)
að nota fastar og afstæðar tilvísanir í reiti
að afrita formúlur í reitum
að setja inn myndir og teikningar í vinnublað
að prenta út skjal eða hluta úr skjali og nota „Print Preview“
að búa til og breyta myndriti
Leiðbeinandi: Dóróthea Jónsdóttir, verkefnastjóri auglýsinga- og fræðslumála
Þátttakendur: Allir á póstlistanum Fræðsla
Dagar og tími:
Þriðjudagur 26. apríl frá kl. 10.00-12.00
Fimmtudagur 2. maí frá kl. 10.00-12.00
Miðvikudagur 8. maí frá kl. 10.00-12.00
Lengd: 6 klukkustundir
Staðsetning: Námskeiðið verður haldið í fundarherbergi á 2. hæð Ráðhúss og þurfa þátttakendur að koma
með fartölvur með sér.
Forrit: Kennt verður á Microsoft Excel 2003
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is

