Starfsmannasamtöl

Starfsmannasamtöl Samkvæmt Mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eiga starfsmannasamtöl að fara fram á öllum vinnustöðum árlega. Þetta námskeið er tilvalið fyrir

Flýtilyklar

Starfsmannasamtöl

Samkvæmt Mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eiga starfsmannasamtöl að fara fram á öllum vinnustöðum árlega.

Þetta námskeið er tilvalið fyrir stjórnendur til að bæta kunnáttu sína og eru stjórnendur hvattir til þess að nýta sér námskeiðið sem undirbúning/þjálfun fyrir starfsmannasamtölin.

Starfsmannasamtöl hafa sýnt gildi sitt í stofnunum sem leggja áherslu á að virkja mannauðinn og rækta gott samstarf. Starfsmannasamtöl eru stjórntæki sem er ætlað að auka starfsánægju, starfsáhuga og marksækni starfsmanna. Starfsmannasamtölum er ætlað að skerpa tilfinningu starfsmanna fyrir liðsheildinni og fyrir því hvernig verk þeirra og samskipti við samstarfsfólk geta orðið til þess að uppfylla þeirra eigin markmið í vinnunni, um leið og þeir eru að uppfylla markmið stofnunarinnar. Starfsmannasamtölin eru yfirmönnum stuðningur við að átta sig á viðhorfum starfsmanna til verkefna og samstarfs og virkja þá í starfi .

Á námskeiðinu verður fjallað um tilgang starfsmannasamtala, aðferðafræðina og viðhorfin á bak við notkun þeirra. Talað er um hvernig standa þurfi að samtölunum, þannig að þau skili tilætluðum árangri.

Leiðbeinandi: Kristján Már Magnússon sálfræðingur
Þátttakendur: Stjórnendur sem taka starfsmannasamtöl.
Tími: Miðvikudagur 7. mars frá kl. 09.00-16.00, klukkutíma hlé verður gert í hádeginu.
Staðsetning: Húsið 4. hæð í Rósenborg
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is

 


Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:26
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16