Stjórnendahandbók Akureyrarbæjar

Akureyrarkaupstaður leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða

Flýtilyklar

Fréttir

Áritun reikninga og sumarstarfsmenn í SAP


Starfsfólk bókhaldsdeildar vill minna SAP áritara á að tilkynna þarf deildinni hverjir leysa af í áritun reikninga í sumar ásamt tímabili, því áritun reikninga má ekki stöðvast þó áritari fari í leyfi. Einnig er góð regla að tilkynna í bókhald þegar afleysingu er lokið. Lesa meira

Niðurstöður MARKVISS


Á starfsdegi stjórnenda þann 2. maí sl. gerði Heimir Haraldsson, náms- og starfsráðgjafi hjá Símey, grein fyrir niðurstöðum MARKVISS þarfagreiningar sem gerð var meðal stjórnenda Akureyrarbæjar í vetur. Um tvær kannanir var að ræða annars vegar um líðan í starfi og hins vegar um fræðsluþarfir. Niðurstöðurnar eru gott tæki til að skipuleggja fræðslu fyrir stjórnendur á næstu misserum. Lesa meira

Hjólað í vinnuna - Íþróttaráð veitir viðurkenningu

Hjólað í vinnuna 2012
Íþróttaráð Akureyrarbæjar hefur ákveðið að veita viðurkenningu til þess vinnustaðar Akureyrarbæjar sem stendur sig best í keppninni Hjólað í vinnuna. Keppnin hefst í dag 9. maí og stendur til 29. maí. Íþróttaráð hvetur fyrirtæki og einstaklinga á Akureyri til þátttöku í verkefninu og taka þannig þátt í að auka almenna lýðheilsu Akureyringa. Lesa meira

Ertu á leiðinni í frí?

Sumar og sól!
Á starfsmannahandbókinni er nú að finna leiðbeiningar um skráningu fjarvista í dagbók og hvernig Out of office er uppsett fyrir tölvupóstinn. Einnig eru leiðbeiningar um hvernig skal skrá sumarfríið í viðverukerfið í OneSystem. Lesa meira

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:26
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16