Fjárhagsáætlun

Meginverkefni hagþjónustu eru umsjón með starfsáætlana- og fjárhagsáætlanagerð sviða, deilda og stofnana bæjarins og eftirfylgni með áætlunum. Deildin

Flýtilyklar

Fjárhagsáætlanagerð - Hagþjónusta

Meginverkefni hagþjónustu eru umsjón með starfsáætlana- og fjárhagsáætlanagerð sviða, deilda og stofnana bæjarins og eftirfylgni með áætlunum. Deildin annast spár um íbúa- og hagþróun í bænum, ráðgjöf og fræðslu til stjórnenda, stjórnunarúttektir á starfseiningum og útgáfu tölulegra upplýsinga sem varða bæjarfélagið. Þá annast deildin innkaupastjórn og rekstur tölvukerfa bæjarskrifstofanna og tengingar þeirra við stofnanir bæjarins.

Skrár vegna fjárhagsáætlunarvinnu

Í skjalinu Forsendur fjárhagsáætlunar 2012 eru forsendur áætlunarinnar ásamt fjárhagsramma niður á málaflokka. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um áætlaða desemberuppbót og áætlaða orlofsuppbót eftir stéttarfélögum ásamt upplýsingum um launatengd gjöld.

Í meðfylgjandi skjali eru upplýsingar um hvernig laun bókast sem dagvinna, yfirvinna og launatengd gjöld.

Skjöl sem nota á við gerð fjárhagsáætlunar 2012 verða send út til embættismanna þegar endurskoðun áætlunar  2011 er lokið. Vakin er athygli á að einnig má nota sambærilegar vinnuskrár frá fyrra ári.

Vegna vinnu í launaáætlun má finna hér upplýsingar um það hvernig megi taka út lista í skrifborði stjórnandans og einnig má finna hér almennar leiðbeiningar með launaáætlun.

Hér má nálgast núverandi fjárhagsáætlanir og áætlanir fyrri ára  : Fjárhagsáætlanir

Sjá einnig:

Nánari upplýsingar um hagþjónustu

Ýmsar fjármálaupplýsingar

Fjárhagsáætlanagerð - SAP leiðbeiningar

Fjárhagsáætlanagerð - innsláttur

Fjárhagsáætlanagerð - skýrsla

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:25
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16