Stjórnendahandbók Akureyrarbæjar | Akureyri.is

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Flýtilyklar

Fréttir

Sumarstörf hjá Akureyrarbæ 2012


Umsóknartímabil sumarstarfa hjá Akureyrarbæ er hafið og stendur til 6. mars nk. Margvísleg störf eru í boði svo sem á sambýlum, í öldrunarþjónustu, íþróttamannvirkjum, skrifstofustörf o.fl. Við hvetjum konur jafnt sem karla til þess að sækja um störf hjá Akureyrarbæ og skoða með opnum huga þau störf sem í boði eru – því ekki að komast út úr hefðbundnum kynhlutverkum og prófa eitthvað nýtt? Lesa meira

Lífshlaupið hefst á morgun


Lífshlaupið verður ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 1. febrúar n.k. Um 16.400 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum um rúmlega 3000 á milli ára. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is Lesa meira

Staðgreiðsla vegna launa frá öðrum launagreiðendum


Í mörgum tilvikum eru starfsmenn Akureyrarbæjar launþegar hjá öðrum launagreiðanda en Akureyrarbæ og þurfa því að passa að tekið sé tillit til þeirra launa við útreikning staðgreiðslu á árinu 2012. Ef starfsmenn kjósa svo er hægt að taka tillit til launa frá öðrum við útreikning launa hjá Akureyrarbæ en að sjálfsögðu geta starfsmenn einnig valið að tilkynna öðrum launagreiðanda um laun hjá Akureyrarbæ. Ef óskað er eftir að Akureyrarbær taki tillit til launa frá öðrum við útreikning staðgreiðslu launa þarf að senda beiðni þar um, annað hvort skriflega eða í tölvupósti á viðkomandi launafulltrúa. Lesa meira

Tilboð í ræktina


Líkamsræktarstöðvar á Akureyri bjóða starfsfólki Akureyrarbæjar eftirfarandi afsláttarkjör: Bjarg býður upp á árskort á 61.000 kr. og 6 mánaða kort á 42.000 kr. Tilboðið gildir þangað til annað verður ákveðið. Átak býður 15% afslátt af listaverði á árskortum. Tilboð þetta gildir til 15. febrúar 2012. Árskort kostar með afslætti 54.655 kr. Flest stéttarfélög veita styrki til líkamsræktar sem hægt er að nýta til þess að kaupa kort til að stunda ýmiskonar líkamsrækt. Lesa meira

Akureyri öll lífsins gæði
fimmtudagur 09.02. 2012
kl. 00:32
+NNV 3 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16