Tilboð/afslættir

Tilboð í ræktina Líkamsræktarstöðvar á Akureyri bjóða starfsfólki Akureyrarbæjar eftirfarandi kjör: Bjarg býður upp á árskort á 61.000 kr og 6 mánaða kort

Flýtilyklar

Tilboð og afslættir fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar

Tilboð í ræktina

Líkamsræktarstöðvar á Akureyri bjóða starfsfólki Akureyrarbæjar eftirfarandi kjör:

Bjarg býður upp á árskort á 61.000 kr og 6 mánaða kort á 42.000 kr. Tilboðið gildir þangað til annað verður ákveðið. Nánari upplýsingar um tilboð frá Bjargi.

Átak býður 15% afslátt af listaverði á árskortum.  Tilboð þetta gildir til 15. febrúar 2012. Árskort kostar með afslætti 54.655 kr.

Kortin gilda í tækjasal og í alla opna tíma. Við kaup á korti skal sýna hausinn á síðasta launaseðli til að staðfesta að viðkomandi sé starfsmaður Akureyrarbæjar.

Athugið að flest stéttarfélög veita styrki til líkamsræktar sem hægt er að nýta til þess að kaupa kort!

Einkaþjálfun á Bjargi

Fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar sem ætlar að velja sér tilboð á Bjargi býður Radek ÍAK einkaþjálfari og starfsmaður Alþjóðastofu uppá fríar líkamsgreiningar og ástandsmælingar. http://www.einkathjalfun.wordpress.com/  

EJS - Tilboð fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar.

Starfsmenn Akureyrarbæjar njóta 20 - 24% afsláttar frá listaverði á völdum vörum frá EJS. Til að nýta afsláttinn þurfa starfsmenn að framvísa haus af launaseðli eða öðrum gögnum sem sýna að þeir eru starfsmenn Akureyrarbæjar. Verslun EJS er á horni Hvannavalla og Tryggvabrautar.

Dekkjahöllin - starfsmannaafsláttur

Í tilefni 25 ára afmæli Dekkjahallarinnar býður Dekkjahöllinn upp á 25% afslátt af dekkjum (sé greitt með kreditkorti er afsláttur 20%). Dekkjahöllinn er með flestar gerðir dekkja á lager en Dekkjahöllin flytur inn dekk frá Bandaríkjunum, Ítalíu og Kína svo eitthvað sé nefnt.

Starfsmenn Akureyrarbæjar fá svo 10% staðgreiðsluafslátt af umfelgun (5% sé greitt með kreditkorti).

Olís og ÓB - starfmannaafsláttur

Olís og ÓB bjóða starfsmönnum Akureyrarbæjar Tvennukort Olís og ÓB. Tvennukortið er staðgreiðslukort sem tryggir þér góðan afslátt af eldsneyti, vörum og þjónustu hjá Olís og ÓB. Ekki þarf að tengja kortið við debet- eða kreditkort, þú einfaldlega framvísar kortinu þegar þú greiðir.

Afsláttur sem kortið veitir.

 *-7 kr. af lítra frá dæluverði á þjónustustöðvum Olís

 *-5 kr. af lítra frá dæluverði hjá ÓB

*15% afsláttur af bílavörum á þjónustustöðvum Olís

*10% afsláttur af Quiznos og heitum mat hjá Olís

 *5-10% afsláttur af öðrum vörum

 *10% afsláttur af útivistar- og ferðavörum hjá Ellingsen

 *10% afsláttur hjá smurstöðvum Olís og hjá MAX 1

 

Ef Vildarpunktasöfnun hefur verið valin lækkar eldsneytisafsláttur í:

-5 kr. af lítra frá dæluverði á þjónustustöðvum Olís + 1,5% í formi Vildarpunkta Icelandair

-3 kr. af lítra frá dæluverði hjá ÓB + 1,5% í formi Vildarpunkta Icelandair.

 

Nánari skýring um hvernig sækja á um lykil er hægt að finna hér.

Nánari skýring um virkni og leiðbeiningar er hægt að finna hér.

Skeljungur - starfsmannaafsláttur hjá Shell og Orkunni

Við bjóðum starfsfólki Akureyrarbæjar, glænýjan Orkulykil með sérkjörum á bensínstöðvum Shell og Orkunnar. Sérkjörin tryggja þér allar gerðir af eldsneyti og úrvalsþjónustu á góðum afslætti í hvert sinn sem þú greiðir með Orkulyklinum (eða Orkukorti) hjá Shell eða Orkunni um land allt. Orkulykillinn er tengdur við debetkort eða kreditkort.

Nýju sérkjörin miðast við afslátt af dæluverði og er ykkar afsláttur eftirfarandi:

7 kr afsláttur af lítranum hjá Shell

5 kr afsláttur af lítranum hjá Orkunni

10 kr af lítranum í upphafsafslátt fyrir nýja lykilhafa

10 kr af lítranum á afmælisdegi lyklahafa

15-20% afsl af ýmsum vörum og þjónustu ss.smurningu, tjöruhreinsi, rúðuvökva, kaffi.

Nánari skýringar um hvernig sækja á um lykil er hægt að finna hér.

Atlantsolía - starfsmannaafsláttur fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar

Starfsmönnum sem kjósa að kaupa eldsneyti hjá Atlantsolíu býðst afsláttur sem hér segir:

4 kr afsláttur á öllum öðrum sjálfsafgreiðslustöðvum Atlantsolíu.

Starfsmenn Akureyrarbæjar geta valið sér eina aðalafgreiðslustöð, í flestum tilvikum velja þeir væntanlega milli afgreiðslustöðvarinnar í Baldursnesi eða stöðvarinnar á Glerártorgi.

Starfsmenn fá 5 kr afslátt á aðalafgreiðslustöðinni í stað 4 kr á öðrum stöðvum Atlantsolíu.

Starfsmenn geta farið á slóðina https://secure.atlantsolia.is/umsoknir/daelulykill_akureyri.aspx og sótt þar um dælulykil, sótt um eða skipt um aðalafgreiðslustöð. 

 

·· Sértilboð á AO stöðvum bætast við boðinn afslátt

· Á afmælisdegi dælulyklahafa veitir dælulykilinn 9 kr í afslátt á öllum stöðvum og 10 kr á valdri stöð.

Frumherji

Starfsfólk Akureyrarbæjar fær 15% afslátt af gjaldi fyrir aðalskoðun bíla hjá Frumherja.

Starfsmannatilboð frá Vodafone

Starfsfólk Akureyrarbæjar fær sérkjör varðandi heimasíma, farsíma og internetþjónustu, sjá hér.

Akureyri öll lífsins gæði
fimmtudagur 09.02. 2012
kl. 12:16
SV 3 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16