Tilboð í ræktina
Líkamsræktarstöðvar á Akureyri bjóða starfsfólki Akureyrarbæjar eftirfarandi kjör:
Bjarg býður upp á árskort á 61.000 kr og 6 mánaða kort á 42.000 kr. Tilboðið gildir þangað til annað verður ákveðið. Nánari upplýsingar um tilboð frá Bjargi.
Átak býður 15% afslátt af listaverði á árskortum. Tilboð þetta gildir til 1. maí 2012. Árskort kostar með afslætti 58.905 kr.
Kortin gilda í tækjasal og í alla opna tíma. Við kaup á korti skal sýna hausinn á síðasta launaseðli til að staðfesta að viðkomandi sé starfsmaður Akureyrarbæjar.
Athugið að flest stéttarfélög veita styrki til líkamsræktar sem hægt er að nýta til þess að kaupa kort!
Einkaþjálfun á Bjargi
Fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar sem ætlar að velja sér tilboð á Bjargi býður Radek ÍAK einkaþjálfari og starfsmaður Alþjóðastofu uppá fríar líkamsgreiningar og ástandsmælingar. http://www.einkathjalfun.wordpress.com/
EJS - Tilboð fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar.
Starfsmenn Akureyrarbæjar allt að - 24% afsláttar frá listaverði á völdum vörum frá EJS. Til að nýta afsláttinn þurfa starfsmenn að framvísa haus af launaseðli eða öðrum gögnum sem sýna að þeir eru starfsmenn Akureyrarbæjar. Verslun EJS er á horni Hvannavalla og Tryggvabrautar.
Olís og ÓB - starfmannaafsláttur
Olís og ÓB bjóða starfsmönnum Akureyrarbæjar Tvennukort Olís og ÓB. Tvennukortið er staðgreiðslukort sem tryggir þér góðan afslátt af eldsneyti, vörum og þjónustu hjá Olís og ÓB. Ekki þarf að tengja kortið við debet- eða kreditkort, þú einfaldlega framvísar kortinu þegar þú greiðir.
Afsláttur sem kortið veitir.
*-7 kr. af lítra frá dæluverði á þjónustustöðvum Olís
*-5 kr. af lítra frá dæluverði hjá ÓB
*15% afsláttur af bílavörum á þjónustustöðvum Olís
*10% afsláttur af Quiznos og heitum mat hjá Olís
*5-10% afsláttur af öðrum vörum
*10% afsláttur af útivistar- og ferðavörum hjá Ellingsen
*10% afsláttur hjá smurstöðvum Olís og hjá MAX 1
Ef Vildarpunktasöfnun hefur verið valin lækkar eldsneytisafsláttur í:
-5 kr. af lítra frá dæluverði á þjónustustöðvum Olís + 1,5% í formi Vildarpunkta Icelandair
-3 kr. af lítra frá dæluverði hjá ÓB + 1,5% í formi Vildarpunkta Icelandair.
Nánari skýring um hvernig sækja á um lykil er hægt að finna hér.
Nánari skýring um virkni og leiðbeiningar er hægt að finna hér.
Skeljungur - afsláttur hjá Shell og Orkunni
Við bjóðum starfsfólki Akureyrarbæjar, glænýjan Orkulykil með sérkjörum á bensínstöðvum Shell og Orkunnar. Sérkjörin tryggja þér allar gerðir af eldsneyti og úrvalsþjónustu á góðum afslætti í hvert sinn sem þú greiðir með Orkulyklinum (eða Orkukorti) hjá Shell eða Orkunni um land allt. Orkulykillinn er tengdur við debetkort eða kreditkort.
Nýju sérkjörin miðast við afslátt af dæluverði og er ykkar afsláttur eftirfarandi:
* 7 kr afsláttur af lítranum hjá Shell
* 5 kr afsláttur af lítranum hjá Orkunni
* 10 kr af lítranum í upphafsafslátt fyrir nýja lykilhafa
* 10 kr af lítranum á afmælisdegi lyklahafa
* 15-20% afsl af ýmsum vörum og þjónustu ss.smurningu, tjöruhreinsi, rúðuvökva, kaffi.
Nánari skýringar um hvernig sækja á um lykil er hægt að finna hér.
Atlantsolía - afsláttur fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar
Starfsmönnum sem kjósa að kaupa eldsneyti hjá Atlantsolíu býðst afsláttur sem hér segir:
4 kr afsláttur á öllum öðrum sjálfsafgreiðslustöðvum Atlantsolíu.
Starfsmenn Akureyrarbæjar geta valið sér eina aðalafgreiðslustöð, í flestum tilvikum velja þeir væntanlega milli afgreiðslustöðvarinnar í Baldursnesi eða stöðvarinnar á Glerártorgi.
Starfsmenn fá 5 kr afslátt á aðalafgreiðslustöðinni í stað 4 kr á öðrum stöðvum Atlantsolíu.
Starfsmenn geta farið á slóðina https://secure.atlantsolia.is/umsoknir/daelulykill_akureyri.aspx og sótt þar um dælulykil, sótt um eða skipt um aðalafgreiðslustöð.
·· Sértilboð á AO stöðvum bætast við boðinn afslátt
· Á afmælisdegi dælulyklahafa veitir dælulykilinn 9 kr í afslátt á öllum stöðvum og 10 kr á valdri stöð.
Dekkjahöllin - starfsmannaafsláttur
Starfsmenn Akureyrarbæjar fá 10% staðgreiðsluafslátt af umfelgun (5% sé greitt með kreditkorti).
Dekkjahöllinn er einnig með tilboðpakkaverð, 15% afslátt ásamt ákveðnum opnunartilboðum sem eru til í takmörkuðu magni.
Frumherji
Starfsfólk Akureyrarbæjar fær 15% afslátt af gjaldi fyrir aðalskoðun bíla hjá Frumherja.

