Sveitamennt er starfsmenntasjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands (hjá Akureyrarbæ - starfsfólk í Einingu Iðju). Sveitamennt tók formlega til starfa 1. janúar 2007.
Markmið sjóðsins er tvíþætt:
- Að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma.
- Að efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.
Vinnustaðir Akureyrarbæjar geta þannig sótt um styrki t.d. til að halda námskeið fyrir sitt starfsfólk. Umsóknareyðublað er að finna hér.
Sveitamennt skiptist í tvær deildir og sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti:
Sveitarfélagadeild sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði starfsmenntunar sem eru í samræmi við markmið sveitarfélaga sem í sjóðinn greiða; stéttarfélaga sem að sjóðnum standa; eða verkefna sem sjóðstjórn skipuleggur. Auk þess styrkir deildin verkefni sem aðilar semja um í kjarasamningi.
Einstaklingsdeild veitir styrki til einstaklinga, félagsmanna aðildarfélaganna til þess að þeir eigi kost á að sækja nám/námskeið með vinnu án verulegs kostnaðar.
Nánari upplýsingar má finna á www.sveitamennt.is

