
Á starfsmannavef Akureyrarbæjar - www.eg.akureyri.is - getur starfsfólk fundið yfirlit yfir þau námskeið sem það hefur sótt undanfarið og skráð hafa verið í SAP námskeiðskerfið.
Auk þess er að finna á vefnum yfirlit yfir þau námskeið sem standa starfsfólki til boða á næstunni og skráð hafa verið í SAP námskeiðskerfið.
Einnig er unnið að því að símenntunaráætlanir starfsfólks verði aðgengilegar á vefnum.

