Í kjarasamningum BHM félaga við Launanefnd sveitarfélaga (LN) er ákvæði um að heimilt sé að greiða launaviðbætur á sérstökum forsendum (svokölluð TV laun) vegna verkefna og hæfni annarsvegar og vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna hinsvegar. Samskonar ákvæði eru í kjarasamningum leikskólakennara við LN og nú hefur LN veitt Akureyrarbæ heimild til að greiða félagsmönnum í Kili - stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu - TV-einingar vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna. Um er að ræða tilraunaverkefni.
BHM-félagar og leikskólakennarar
Um TV-einingar handa BHM-félögum og leikskólakennurum gilda reglur sem hægt er að nálgast hér. Stjórnendur sækja til framkvæmdastjórnar bæjarins um TV-einingar vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna. Starfsmenn sækja sjálfir um TV-einingar vegna verkefna og hæfni á þessu eyðublaði. Með umsókn skal fylgja umsögn embættismanns - framkvæmdastjóra viðkomandi deildar. Mikilvægt er að eyðublöðin séu notuð og að þau séu vandlega fyllt út. Umsóknum skal skilað til starfsmannaþjónustunnar í Ráðhúsinu. Sótt er um tvisvar á ari, fyrir 1. maí og 1. október.
Sérstök matsnefnd metur umsóknirnar og gerir tillögur til framkvæmastjórnar um úthlutun TV-eininga hverju sinni. Fulltrúar í nefndinni eru Ögmundur Knútsson frá Háskólanum á Akureyri, fulltrúi forstöðumanna er Hólmkell Hreinsson Amtsbókavörður og fyrir hönd framkvæmdastjórnar er Katrín Björg Ríkharðsdóttir, deildarstjóri samfélags og mannréttindadeildar.
Félagsmenn Kjalar
Hér er hægt að ná í reglur um TV-einingar vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna handa félagsmönnum Kjalar. Gert er ráð fyrir að stjórnendur sæki til framkvæmdastjórnar um þessar TV-einingar handa starfsmönnum sínum.

