Styrktarsjóðir

Styrktarsjóður BSRB styrkir fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum. Sjóðurinn greiðir einnig bætur til sjóðfélaga í

Flýtilyklar

Styrktarsjóðir

Styrktarsjóður BSRB styrkir fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum. Sjóðurinn greiðir einnig bætur til sjóðfélaga í slysa- og veikindatilfellum eftir því sem nánar er mælt fyrir í úthlutunarreglum sjóðsins. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu styrktarsjóðsins.

Styrktarsjóður BHM styrkir sjóðfélaga þegar þeir verða fyrir tekjutapi vegna ólaunaðrar fjarveru vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæðna. Einnig er markmiðið að bæta útgjöld vegna ýmiss konar heilbrigðisþjónustu og óvæntra áfalla sjóðfélaga. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu styrktarsjóðsins.

Eining/Iðja - Sjúkrasjóður Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu sjúkrasjóðsins.

Styrktarsjóður VFÍ Megin tilgangur sjóðsins er að greiða sjúkradagpeninga til sjóðfélaga sem eru í starfi en lenda tímabundið út af launaskrá eða verða fyrir launaskerðingu vegna veikinda eða slysa. Auk þess eru greiddir styrkir vegna útlagðs kostnaðar sjóðfélaga. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu styrktarsjóðsins.

Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 09:24
+10.3°SA 5 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16