Skattlagning hlunninda
Upplýsingar um skattalagningu hlunninda má finna á heimasíðu ríkisskattstjóra.
Ökutækjastyrkur
Upplýsingar um skattalega meðferð ökutækjastyrks má finna á heimasíðu ríkisskattsstjóra.
Meðhöndlun hljóðfæragjalds - tónlistarskólakennarar
Hér fyrir neðan er fjallað um hljóðfærastyrki, í fyrsta lagi birtur kafli úr úrskurði yfirskattanefndar nr. 22/2005, í öðru lagi er fjallað um málið frá sjónarhóli laungreiðanda og í þriðja lagi frá sjónarhóli launþega.
Úr úrskurði yfiskattanefndar
Hér fyrir neðan er kafli úr úrskurði yfirskattanefndar nr. 22/2005, þar sem fjallað var um þessi viðfangsefni:
,,Umrædda greiðslu að fjárhæð 145.946 kr. fékk kærandi úr Viðhalds- og endurnýjunarsjóði (X) og byggðist hún
á ákvæði gildandi kjarasamnings, eins og fram er komið, sbr. grein 9.2.1 í kjarasamningnum. Sækir greiðslan grundvöll sinn til þeirrar
kvaðar samkvæmt kjarasamningnum, sbr. grein 8.1.1, að hljómsveitarmenn skuli leggja til tilgreind hljóðfæri sé þess krafist af hálfu
hljómsveitarinnar. Eins og áður er rakið er ekki deilt um skattskyldu umræddrar greiðslu kæranda úr Viðhalds- og endurnýjunarsjóði
(X), sbr. 2. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003. Bæði kærandi og skattstjóri byggðu á því að um styrk væri að ræða
sem teldist til skattskyldra tekna kæranda samkvæmt síðastgreindu lagaákvæði. Sama viðhorf kemur fram í kröfugerð
ríkisskattstjóra í málinu, dags. 28. maí 2004. Miðað við þann skilning fer um frádrátt frá slíkum tekjum sem
greiðslu þessari eftir 2. mgr. 30. gr. nefndra laga. Samkvæmt því ákvæði skulu ákvæði 1. mgr. 1. tölul. 31. gr. laganna, sem efni
sínu samkvæmt eiga einungis við um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri, samt sem áður gilda um beinan kostnað við öflun annarra tekna
en tekna samkvæmt 1. tölul. A-liðar 7. gr. laganna eftir því sem við á, þó ekki ákvæðin um vexti af skuldum, afföll,
gengistöp og fyrningu eigna. Kemur fram að kostnaður þessi leyfist eingöngu til frádráttar sams konar tekjum og hann gekk til öflunar á, og má
frádráttur hvers árs ekki nema hærri fjárhæð en sem nemur þeim tekjum sem hann leyfist til frádráttar."
Laungreiðandi
Þessi greiðsla færist sem styrkur hjá laungreiðanda. Á launamiða eiga þessar greiðslur að fara undir liðinn "Greiðslur eða hlunnindi,
ótalin áður; hvaða?". Að auki er laungreiðanda gert skylt að skýra hvað felist í þessum greiðslum og merkja liðinn með
númerinu 82.
Launþegi
Launþegi færir hana einnig sem styrk í ótölusettan reit "Annað, hvað" undir lið 2.3 á skattframtali. Gjaldanda er gert skylt að gera
sundurliðaða grein fyrir öllum kostnaði á sérstöku yfirliti sem fylgja skal framtalinu (sérstakt undirblað á vefframtali). Heildarkostnaður
skv. yfirlitinu færist síðan í reit 157.

