Vinnuskólinn

Unnið verður í 3 tíma á dag í 6 vikur tímabilið 7. júní - 30. júlí.  Hver unglingur getur unnið allt að 72 klst. Frí verður vikuna 11.júlí ? 18.júlí. 14

Flýtilyklar

Vinnuskóli 14 og 15 ára sumarið 2010

Unnið verður í 3 tíma á dag í 6 vikur tímabilið 7. júní - 30. júlí.  Hver unglingur getur unnið allt að 72 klst.

Frí verður vikuna 11.júlí ? 18.júlí.

14 ára unglingar vinna frá kl. 12:30 - 15:30 mánudaga ? fimmtudaga.

15 ára unglingar vinna  frá kl.  8:30 - 11:30 mánudaga -  fimmtudaga.

Tímakaup 14 ára unglinga kr.  359,00

Tímakaup 15 ára unglinga kr.  410,00

Orlof er innifalið í ofangreindum kauptöxtum.

Laun verða greidd inn á launareikning í banka.

Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar.

Komi upplýsingar um bankareikning ekki í tæka tíð fyrir útborgun, bíður launagreiðsla til næstu útborgunar.

Samkvæmt lögum greiðist 6% skattur af launum 14 og 15 ára unglinga um leið og þau fara yfir kr. 100.745 á ári, (afsláttur kr. 6.045).

14 og 15 ára unglingar eiga ekki veikindarétt á launum.

Launaseðlar verða sendir heim í pósti.

Útborgun launa er síðasti virki dagur mánaðar.

Laun fyrir tímabilið 7. júní ? 15. júní verða greidd 30. júní.

Laun fyrir tímabilið 16. júní ? 15. júlí verða greidd 30. júlí.

Laun fyrir tímabilið 16. júlí ? 6. ágúst verða greidd 31. ágúst.

 

Vinnuskóli 16 ára sumarið 2010

16 ára unglingar fæddir 1994 vinna 6 klst. á dag. Hver unglingur getur unnið allt að 144 klst.
tarfstímabilið er frá 7. júní ? 6. ágúst.

Vinnuskólinn verður lokaður vikuna 11.júlí ? 18. júlí.

Starfstímabilið er 6 vikur, frá 7.júní til 26. júlí, unglingarnir hafa þó tíma.

til 6. ágúst til að klára tímabilið sitt. Vinnutíminn er 6 klst. á dag. Athugið að matartími telst ekki sem vinnutími.

Unnið verður frá mánudegi til fimmtudags en ekki verður unnið á föstudögum.

Tímakaup 16 ára unglinga í dagvinnu er kr.  539,00.

Orlof 10,17% er innifalið í ofangreindum kauptaxta.

Laun verða greidd inn á launareikning í banka.

Mjög mikilvægt er að upplýsingar um banka, höfuðbók og númer reiknings séu réttar.

Komi upplýsingar um bankareikning ekki í tæka tíð fyrir útborgun, bíður launagreiðsla til næstu útborgunar.

Unglingar sem verða 16 ára á árinu þurfa að skila skattkorti til Starfsmannaþjónustu svo ekki verði dregin  staðgreiðsla af launum.

Rétt er að benda á mikilvægi þessa að skattkorti sé skilað tímanlega þ.e. í síðasta lagi viku fyrir  útborgun svo ekki komi til frádráttar vegna staðgreiðslu.

Lífeyrissjóður 4% er dreginn af launum um næstu mánaðamót eftir að 16 ára aldri er náð.  Greitt er í Stapa lífeyrissjóð, mótframlag 11,5%.

Veikindaréttur er skv. kjarasamningum LN, grein 12.2.2 um tímavinnufólk.  Veikindadaga á launum og tímana fyrir þá þarf að skrá.

Launaseðlar verða sendir heim í pósti.

Útborgun launa er síðasti virki dagur mánaðar.

Laun fyrir tímabilið 7. júní ? 15. júní verða greidd 30. júní.

Laun fyrir tímabilið 16. júní ? 15. júlí verða greidd 30. júlí.

Laun fyrir tímabilið 16. júlí ? 6. ágúst verða greidd 31. ágúst.

Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 09:17
+10.3°SA 5 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16