
Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar sér um launavinnslu og launagreiðslur til starfsmanna Akureyrarbæjar.
Starfsmannaþjónustan hefur einnig umsjón með starfsmannastefnu bæjarstjórnar Akureyrar, túlkun kjarasamninga, kjaraþróun, starfsmati og fræðslumálum starfsmanna.
Starfsmannastjóri Akureyrarbæjar er Halla Margrét Tryggvadóttir, deildarstjóri Starfsmannaþjónustu.

