Umboðsmaður skuldara opnar útibú á Akureyri

Umboðsmaður skuldara opnar útibú á Akureyri Umboðsmaður skuldara opnar útibú á Akureyri mánudaginn 6. febrúar nk. Útibúið er staðsett á Glerárgötu 26,

Flýtilyklar

Umboðsmaður skuldara opnar útibú á Akureyri

Umboðsmaður skuldara opnar útibú á Akureyri mánudaginn 6. febrúar nk. Útibúið er staðsett á Glerárgötu 26, 1.hæð og opið verður alla virka daga frá kl. 9.00 til 15.00.

Útibúið á Akureyri er annað útibú embættisins, en í desember 2010 opnaði umboðsmaður skuldara útibú í Reykjanesbæ.  Líkt og í Reykjanesbæ munu tveir ráðgjafar starfa á Akureyri, þær Harpa Halldórsdóttir viðskiptafræðingur og Heiðrún Ósk Ólafsdóttir lögfræðingur.

Hægt er að panta viðtalstíma hjá ráðgjafa í síma 512-6600.

Það er von umboðsmanns skuldara að embættið muni eiga gott samstarf við aðila á Akureyri við að aðstoða einstaklinga í greiðsluerfiðleikum.


Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 09:15
+10.3°SA 5 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16