Hjólað í vinnuna - Íþróttaráð veitir viðurkenningu
09. maí 2012
Íþróttaráð Akureyrarbæjar hefur ákveðið að veita viðurkenningu til þess vinnustaðar Akureyrarbæjar sem stendur sig best í keppninni Hjólað í vinnuna. Keppnin hefst í dag 9. maí og stendur til 29. maí. Íþróttaráð hvetur fyrirtæki og einstaklinga á Akureyri til þátttöku í verkefninu og taka þannig þátt í að auka almenna lýðheilsu Akureyringa. Lesa meira




