Fjölskyldumál

Í starfsmannastefnu Akureyrarbæjar segir: Bæjarstjórn Akureyrar vill skapa starfsmönnum sínum aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar

Flýtilyklar

Fjölskyldumál

Í starfsmannastefnu Akureyrarbæjar segir:

Bæjarstjórn Akureyrar vill skapa starfsmönnum sínum aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er. Starfsmönnum skal gert kleift að minnka starfshlutfall tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, t.d. umönnunar barna og sjúkra á heimili. Starfsmenn skulu eiga kost á hlutastörfum og sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem aðstæður leyfa.

Foreldraorlof

Fæðingarorlof

Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar má finna hér.

Nánari upplýsingar um sveigjanlegan vinnutíma má finna hér.

Samkomulag um fjarvinnu

Samkomulag um fjarvinnu hefur verið gert milli Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasambands Íslands f.h. aðildarfélaga sinna annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga.

Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 09:09
+10.3°SA 5 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16