Allt starfsfólk Akureyrarbæjar á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það hafi tækifæri til að vinna störf sín án þess að eiga á hættu einelti og kynferðislega áreitni.
Akureyrarbær ber sem atvinnurekandi ábyrgð á því að koma í veg fyrir að starfsfólk og skjólstæðingar verði fyrir kynferðislegri áreitni eða öðru einelti.
Gefnar hafa verið út leiðbeiningar sem gagnast ættu þolanda kynferðislegrar áreitni/eineltis og yfirmanni sem fær slík
mál til úrlausnar. Einnig hefur verið gefið út veggspjald með upplýsingum um hvert hægt sé að leita komi upp kynferðisleg áreitni
eða einelti á vinnustað.
Leiðbeiningarnar er hægt að nálgast hér og veggspjaldið hjá jafnréttisráðgjafa eða starfsmannaþjónustu.
Nánari upplýsingar og aðstoð:
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri, s. 4601000, halla@akureyri.is
Katrín Björg Ríkarðsdóttir jafnréttisráðgjafi, s. 4601000, katrinb@akureyri.is
Eining-Iðja s. 4603600, bjorn@ein.is
Kjölur s. 5258383, jakobina@kjolur.is

