Nýtt starfsfólk Akureyrarbæjar þarf að í
samráði við yfirmann sinn skila ýmsum gögnum og upplýsingum til Starfsmannaþjónustunnar.
1. Skattkort
Skila þarf skattkorti sem fyrst, en þó eigi síðar en 7 dögum fyrir útborgun.
2. Prófskírteini og nám
Ófaglærðir
Starfsmenn sem ráðnir eru skv. kjarasamningi Einingar-Iðju eða Kjalar þurfa að skila skírteini vegna stúdentsprófs og/eða annars
viðbótarnáms sem lokið er. Hækkun vegna náms tekur gildi um næstu mánaðarmót eftir að staðfesting berst til
starfsmannaþjónustu.
Hjúkrunarnemar, læknanemar og iðjuþjálfanemar
Skila þarf vottorði frá skóla þar sem fram kemur hversu mörgum einingum er lokið. Lágmarksfjöldi eininga er 30 (60 ETCS) fyrir hvert ár.
Sjúkraliðanemar
Stjórnandi þarf að skila afriti af starfsnámssamningi við skóla til Starfsmannaþjónustu.
Faglærðir
Skila þarf prófskírteinum vegna fagnáms með drögum að ráðningarsamningi. Kennarar þurfa að skila leyfisbréfum vegna grunn- framhalds- og/eða leikskóla. Hækkun vegna viðbótarnáms tekur gildi um næstu mánaðarmót eftir að staðfesting berst til starfsmannaþjónustu.
3. Starfsvottorð
Skila þarf starfsvottorði vegna persónuálags, þ.e. staðfestingu fyrri vinnuveitanda á starfstíma. Hafi félagsmaður í Einingu-Iðju, Kili, Vélstjórafélagi Íslands eða Félagi skipstjórnarmanna starfsreynslu frá ríki eða öðru sveitarfélagi er hún metin, óháð hvaða starfi hann gegndi þar. Hafi starfsmaður starfsreynslu úr fyrirtæki á almenna markaðnum er hún metin ef um er að ræða sambærilegt starf við það sem hann gegnir hjá Akureyrarbæ.
Fyrri starfsreynsla félagsmanna í fagstéttarfélögum er metin.
Vegna veikindaréttar er tekið tillit til starfsreynslu frá ríki og öðrum sveitarfélögum.
4. Séreignarsparnaður
Ef starfsmenn hyggjast greiða í séreignarsjóð þarf að skila samningi þar um. Athugið að í þeim tilfellum sem starfsmenn hafa starfað hjá Akureyrarbæ áður og greitt í sérreignarsjóð þá gerist það ekki sjálfkrafa að greitt verði í séreignarsjóð þegar starfsmaður ræður sig aftur til starfa. Samningur um sparnað þarf að liggja fyrir ásamt beiðni frá starfsmanni þess efnis að greitt verði í viðkomandi sjóð.

