Í mannauðsstefnu Akureyrarbæjar segir: Til þess að tryggja starfsánægju starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að taka vel á
móti nýju starfsfólki með því að allt nýtt fastráðið starfsfólk fari á nýliðanámskeið þar sem
það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum."
Reglulega er boðið upp á nýliðafræðslu en slík fræðsla á að standa öllum nýjum starfsmönnum Akureyrarbæjar til boða innan árs frá því að þeir hefja störf. Námskeiðin fara fram á vinnutíma starfsmanna eins og kjarasamningar kveða á um, en ella eiga starfsmenn rétt á launum á meðan á námskeiði stendur.
Markmiðið með nýliðafræðslu er að þátttakendur kynnist mismunandi starfsemi hjá Akureyrarbæ og fái innsýn inn í hin ýmsu mál sem snerta starfsmenn Akureyrarbæjar, beint og óbeint.
Nánari upplýsingar um nýliðafræðslu gefur Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri starfsþróunar - ingunn@akureyri.is
Glærur frá nýliðafræðslu í nóvember 2011
Stjórnkerfi og starfsemi Akureyrarbæjar - Gunnar Frímannsson, verkefnastjóri á Hagþjónustu
Réttindi og skyldur starfsmanna Akureyrarbæjar - Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlögmaður
Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar - Katrín Björg Ríkarðsdóttir, jafnréttisráðgjafi og framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar
Á mér að líða vel í vinnunni? Siðfræði og samskipti á vinnustað - Þórgnýr Dýrfjörð, heimspekingur og framkvæmdastjóri Akureyrarstofu
Vinnuvernd hjá Akureyrarbæ - Dagný M. Harðardóttir, skrifstofustjóri Ráðhúss
Þjónusta og þjónustustefna Akureyrarbæjar - Dagný M. Harðardóttir og Ingunn Helga Bjarnadóttir
Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar - Halla Margrét Tryggvadóttir, starfsmannastjóri
Mannauðsstefna - Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri starfsþróunar
Starfsmannavefur Akureyrarbæjar og starfsmannahandbók - Dóróthea Jónsdóttir og Alma Rún Ólafsdóttir, verkefnastjórar hjá starfsmannaþjónustu.

