Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri er fallegur bær og það er mannlífið á Akureyri líka. Íbúarnir bera það með sér að þeim líður vel. Ekki er streitunni fyrir að fara og fólk kemst auðveldlega leiðar sinnar. Hér er gott að una í leik og starfi." - Hermann Jón Tómasson

Starfsmannahandbók

Verndum_namsk_jan06_2

Nýliðafræðsla 13. og 14. apríl nk. - 30.3.2010

Dagana 13. og 14. apríl nk. verður boðið upp á fræðslu fyrir nýtt starfsfólk hjá Akureyrarbæ. Samkvæmt Mannauðsstefnu Akureyrarbæjar á allt nýtt fastráðið starfsfólk að fara á nýliðanámskeið þar sem það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum.

Lesa meira
 
Nemendur í Glerárskóla í nóvember 2007

Viðurkenning skólanefndar fyrir framúrskarandi skólastarf - 30.3.2010

Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega, veita þeim einstalingum eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur.  Óskað er eftir tilnefningum á þar til gerðum eyðublöðum fyrir 1. maí.

Lesa meira
 

Starfsmannaafsláttur hjá Shell og Orkunni - 29.3.2010

Skeljungur býður starfsfólki Akureyrarbæjar, glænýjan Orkulykil með sérkjörum á bensínstöðvum Shell og Orkunnar. Sérkjörin tryggja þér allar gerðir af eldsneyti og úrvalsþjónustu á góðum afslætti í hvert sinn sem þú greiðir með Orkulyklinum (eða Orkukorti) hjá Shell eða Orkunni um land allt. Orkulykillinn er tengdur við debetkort eða kreditkort.

Nánari skýringar um hvernig sækja á um lykil er hægt að finna hér.

 

Lesa meira
 
Starfsendurhafingarjsodur

Hvað er Starfsendurhæfingarsjóður? - 4.3.2010

Samtök launafólks með félagsmenn í Eyjafirði bjóða á fundi þar sem starfsemi Virk starfsendurhæfingarsjóðs verður kynnt. Ráðgjafar sjóðsins í Eyjafirði fjalla t.d. um hvernig sjóðurinn nýtist félagsmönnum. Þann 18. mars verður fundur á Akureyri, að Skipagötu 14, 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 18:00.

Lesa meira
 

Ráðgjafarþjónusta við innflytjendur í mars - 4.3.2010

Í mars verður ráðgjafarþjónusta við innflytjendur veitt í Rósenborg, Skólastíg 2 á fimmtudögum milli kl. 13 og 17. Tímapantanir eru í síma 460 1234 og í netfanginu astofan@akureyri.is. Nánari upplýsingar er að finna hér.

Lesa meira
 
Innanbajarkronika

Innanbæjarkrónikan komin út - 4.3.2010

Nýtt, fróðlegt og stórskemmtilegt tölublað starfsmannafrétta Akureyrarbæjar er komið út.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_Starfsmhandbok10

Þetta vefsvæði byggir á Eplica