Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er fallegur bær og það er mannlífið á Akureyri líka. Íbúarnir bera það með sér að þeim líður vel. Ekki er streitunni fyrir að fara og fólk kemst auðveldlega leiðar sinnar. Hér er gott að una í leik og starfi." - Hermann Jón Tómasson
Ágæta samstarfsfólk!
Ég sendi ykkur og ykkar fólki bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári. Þakkir fyrir gott samstarf og vel unnin störf á því ári sem er að líða.
Með kærri kveðju, Hermann Jón Tómasson Bæjarstjóri Lesa meira
Á vormisseri 2010 hefst við Háskóla Íslands nám fyrir núverandi og verðandi stjórnendur í opinberum rekstri ríkis og sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar 2010. Náminu er ætlað að ýta undir forystu um skilvirkni, vandaðri vinnubrögð og betri þjónustu hins opinbera.
Akureyrarbær hefur gert samning við Atlantsolíu um afsláttarkjör fyrir starfsmenn. Starfsmönnum sem kjósa að kaupa eldsneyti hjá Atlantsolíu býðst nú afsláttur sem hér segir:
· 5 kr afsláttur per lítra á valdri stöð. (4 kr+1 kr = 5 kr).
· 4 kr afsláttur á öllum öðrum sjálfsafgreiðslustöðvum Atlantsolíu.
· Sértilboð á AO stöðvum bætast við boðinn afslátt
· Á afmælisdegi dælulyklahafa veitir dælulykilinn 9 kr í afslátt á öllum stöðvum og 10 kr á valdri stöð.
Lesa meira
Frá og með 15. janúar 2010 verða launaseðlar ekki sendir í heimabanka starfsfólks. Launaseðlarnir verða áfram birtir á starfsmannavefnum www.eg.akureyri.is. Á starfsmannavefnum geta starfsmenn bæjarins fundið ýmsar einstaklingsbundnar upplýsingar sem skráðar eru um viðkomandi í SAP mannauðskerfi bæjarins.
Starfsfólki Akureyrarbæjar gefst kostur á að kaupa vetrarkort í Hlíðarfjalli á sama afslætti og Fjórir saman. Framvísa þarf hausnum af launaseðli í afgreiðslunni í Hlíðarfjalli (ekki eldri en þriggja mánaða gamall) og ganga frá greiðslu í leiðinni. Starfsfólk bæjarins getur keypt vetrarkort fyrir sig sjálft og einnig fyrir maka og börn. ATH! að hægt er að nýta íþróttastyrki stéttarfélaganna til kaupa á vetrarkorti.