Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri er fallegur bær og það er mannlífið á Akureyri líka. Íbúarnir bera það með sér að þeim líður vel. Ekki er streitunni fyrir að fara og fólk kemst auðveldlega leiðar sinnar. Hér er gott að una í leik og starfi." - Hermann Jón Tómasson

Starfsmannahandbók

Innanbajarkronika

Innanbæjarkrónikan - fyrsta tölublað ársins 2009 - 29.12.2008

Fyrsta tölublað ársins 2009 af Innanbæjarkrónikunni er komið út. Meðal efnis er áramótaávarp frá Sigrúnu Björk Jakobsdóttur bæjarstjóra, upplýsingar um nýja kjarasamninga og umfjöllun um Plastiðjuna Bjarg-Iðjulund. Föstu liðirnir Gamla myndin, Hvað ertu að gera? og Matarhlé eru auk þess á sínum stað. Lesa meira
 
Kveikt á jólatrénu á Ráðhústorgi 2007

Jólakveðja frá starfsmannaþjónustunni - 22.12.2008

Starfsmannaþjónustan sendir starfsfólki Akureyrarbæjar og fjölskyldum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár og þakkar ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Lesa meira
 
Simey

SÍMEY - Námskráin komin út fyrir vorið 2009 - 19.12.2008

Námskrá Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar er komin út fyrir vorið 2009. Mörg spennandi námskeið eru í boði og er starfsfólk hvatt til að nýta sér styrkjamöguleika hjá stéttarfélögum sínum og starfsmenntasjóðum til að sækja námskeið á komandi vori. Námskránna má nálgast hérna og hægt er að skrá sig á námskeið á heimasíðu SÍMEY. Lesa meira
 

Launanefnd Sveitarfélaga semur við Kjöl og Einingu Iðju - 1.12.2008

Launanefnd Sveitarfélaga undirritaði sl. föstudag kjarasamninga við stéttarfélögin Kjöl og Einingu Iðju. Gildistími beggja samninga er frá 1. desember 2008 til 31. ágúst 2009 og tók ný launatafla gildi 1. desember en samkvæmt henni hækka launataxtar um 20.300 krónur.

Lesa meira
 




Útlit síðu:

Haus_Starfsmhandbok10

Þetta vefsvæði byggir á Eplica