Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri er fallegur bær og það er mannlífið á Akureyri líka. Íbúarnir bera það með sér að þeim líður vel. Ekki er streitunni fyrir að fara og fólk kemst auðveldlega leiðar sinnar. Hér er gott að una í leik og starfi." - Hermann Jón Tómasson

Starfsmannahandbók

Lystigarðurinn

Launaseðlar á pappír afþakkaðir - 31.5.2007

Launaseðlar starfsmanna Akureyrarbæjar eru sendir rafrænt úr launakerfi SAP í heimabanka viðkomandi á sama tíma og launaseðlar hverrar útborgunar eru prentaðir út á pappír. Þessi lausn gerir starfsmönnum kleift að kynna sér launaseðla sína a.m.k. sólarhring áður en þeir berast þeim í pósti. Hvenær sem er má síðan nálgast eldri launaseðla í heimabankanum, skoða eða prenta út eftir þörfum.

Lesa meira
 
Ferjan

Ferðakostnaður breytist - 24.5.2007

Greiðslur fyrir ferðir bæjarstarfsmanna taka mið af greiðslum til ríkisstarfsmanna. Þessar greiðslur taka breytingum 1. júní 2007. Lesa meira
 

Viðhorfskönnun KJALAR – starfsmat - 21.5.2007

Könnunin leiddi í ljós athyglisverðar niðurstöður varðandi starfsmatið. Svarendur eru almennt frekar sáttir við starfsmatið en þegar niðurstöður eru skoðaðar út frá búsetu kemur töluverður munur í ljós. 

Lesa meira
 

Viðhorfskönnun KJALAR – símenntun - 21.5.2007

Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri framkvæmdi viðhorfskönnun fyrir Stéttarfélagið KJÖL þar sem viðhorf félagsmanna til ýmissa þátta var skoðað. Niðurstöður varðandi sí- og endurmenntun voru áhugaverðar en þar kom fram að félagsmenn eru duglegir við að sækja sér sí- og endurmenntun og mikill meirihluti þeirra hefur sótt sér einhverskonar starfstengda fræðslu á síðustu tveimur árum. 

Lesa meira
 
Gamli_og_gellurnar

Hjólað í vinnuna - 10.5.2007

Nú er fyrsta vikan liðin í átakinu hjólað í vinnuna. Starfsfólk Akureyrarbæjar hefur tekið vel við sér og eru 13 deildir eða einingar með 24 liðum skráðar til leiks. Þar af er Síðuskóli einn með 7 lið. Myndin er af liði starfsmannahaldsins – Gamli og gellurnar. Lesa meira
 
Norðurljós í október 2003

Sjúkrasjóður Einingar-Iðju - 2.5.2007

Á aðalfundi Einingar-Iðju nú nýlega voru samþykktar breytingar á lögum um sjúkrasjóð félagsins og er hann nú á meðal þeirra allra bestu innan Starfsgreinasambands Íslands. Breytingin tekur gildi frá og með 1. maí 2007.

Lesa meira

 




Útlit síðu:

Haus_Starfsmhandbok6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica