Lambárhólar eða Grenishólar
eru berghlaupshólar, sem taka yfir allstórt svæði innantil á Glerárdal að austanverðu (á Innradal). Breidd hólasvæðisins er um 2 km. Hólarnir eru stærstir innantil á hlaupsvæðinu og eru það líklega hinir eiginlegu Grenishólar (mönnum ber ekki saman um staðsetningu þeirra). Þar er nú göngumannaskáli Ferðafélags Akureyrar, sem kallast Lambi. Ytri hluti hólanna er allur lægri og hólarnir aðeins melbungur. Er sá partur nokkuð aðskilinn frá aðalhólasvæðinu með dálítilli lægð og gæti hann því vel verið úr vesturfjallinu, þ.e.a.s. Tröllafjalli, enda liggur hann andspænis Stóralækjarhólunum þeim megin. Aðrir (s.s. Margrét Hallsdóttir) telja Stóralækjarhólana vera hluta af Lambárhólahlaupinu og séu þeir þá komnir úr Lambáröxl. Brotskálin ofan við Lambárhólana er víð og grunn, af svipari lengd og hólasvæðið. Koma þar fram mörg nærri lárétt berglög, sýnilega úr basalti, en litgrýtismóberg (túff) er ofan á þeim, uppi á skálarbrúninni. Líklega hafa síðar fallið nokkur mun smærri berghlaup úr öxlinni utanvert við aðalskálinu, bæði til vestur og norðurs. Eru þau ungleg og mjög stórgrýtt (hraun). Annars er Lambárhólahlaupið töluvert gróið og þar hafa í jarðveginum fundist öll þrjú Hekluöskulögin, sem bendi til meira en sjö þúsund ára aldurs.

