"PMT- meðferð er úrræði fyrir foreldra barna með töluverð hegðunarfrávik. Þar sem foreldrar eru mikilvægustu kennarar barna sinna er áhersla lögð á ítarlega vinnu með þeim og gert ráð fyrir sveigjanleika til að mæta þörfum hverrar fjölskyldu. Um er að ræða einstaklingsþjónustu sem felst m.a. í allt að 20 viðtölum hjá PMT meðferðaraðila. Erlendar rannsóknir sýna að í um 70% tilvika tekst með þessum hætti að ná hegðun barnsins innan meðal viðmiðunarmarka að meðferð lokinni. Foreldrar fá aðstoð við að rjúfa þann vítahring sem hefur myndast með því að tileinka sér nýjar leiðir í uppeldi. Unnið er með ákveðna grunnþætti til að stuðla að jákvæðri hegðun barnsins og draga úr hegðunarvanda. Í raun er um að ræða ákveðin verkfæri sem eru: Fyrirmæli og jákvæð samskipti við barnið, notkun hvatningar við kennslu nýrrar hegðunar, að setja mörk til að draga úr og stöðva óæskilega hegðun, lausn vanda og uppbyggilegar aðferðir í samskiptum innan fjölskyldu, eftirlit með hegðun barns innan og utan heimilis, tengsl við skólakerfið ogstjórn neikvæðra tilfinninga. "
(PMT FORELDRAFÆRNI, Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar, upplýsingabæklingur)

