Söngdagar eru skipulagðir af starfsfólki leik- og grunnskóla Akureyrar og eru haldnir í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar en sjálfur afmælisdagurinn er 29. ágúst næstkomandi. Æfingar hafa staðið yfir í skólunum í nokkurn tíma og skiluðu þær ljúfum og fallegum tónum sem ómuðu um allan miðbæinn í rúmlega hálftíma. Lögin sem nemendur sungu voru, Akureyri og norðrið fagra (Stefán Vilhjálmsson) Snert hörpu mína (Davíð Stefánsson) og Krummi svaf í klettagjá (íslensk þjóðvísa eftir Jón Thoroddsen).
Valgerður Hannesdóttir, leikskólastjóri á Hlíðabóli, stýrði nemendum í upphafi og raðaði þeim í brekkuna neðst í Skátagilinu og náði hópurinn fram í göngugötuna. Söngnum stýrði svo Ásta Magnúsdóttir, tónmenntakennari í Giljaskóla og undirspilari á rafmagnsorgel var Elínborg Loftsdóttir, tónmenntakennari í Lundarskóla.
Margir skólar nýttu tækifærið og gengu til og frá miðbæ enda veður einstaklega stillt og fallegt. Sérleyfisbílar Akureyrar styrktu þetta verkefni með því að bjóða ferðir fyrir yngstu nemendurna til og frá miðbænum. Einnig voru Strætisvagnar Akureyrar með aukavagn tilbúinn til að ferja nemendur heim eftir söngstundina. Göngugatan var lokuð á meðan á söngstundinni stóð en margir gestir lögðu leið sína í bæinn til að hlusta á æsku Akureyrar syngja.
Leik- og grunnskólunum er skipt niður á tvo föstudaga í mars og voru það nemendur í Brekkuskóla, Glerárskóla, Hlíðabóli, Iðavöllum, Kiðagili, Lundarskóla, Naustatjörn, Oddeyrarskóla og Tröllaborgum sem nú mættu til leiks en söngurinn verður endurtekinn á næsta föstudag, 23. mars, með nemendum úr skólunum tíu sem ekki komu fram í dag.
Tengiliðir þessa skemmtilega verkefnis eru leik- og grunnskólakennararnir Valgerður Hannesdóttir, Sigríður Jónasdóttir og Ásta Magnúsdóttir.
Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru á Söngdögum 16. mars.


