Nr. 13/2012 auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Deiliskipulagið Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut

Nr. 13/2012 auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Deiliskipulagið Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar

Flýtilyklar

Nr. 13/2012 auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Deiliskipulagið Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6.desember 2011 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut.

Deiliskipulagið felur í sér að tengibrautin Dalsbraut heldur áfram frá núverandi aðkomuvegi Lundarskóla, þveri Skógarlund og tengist Miðhúsabraut um núverandi hringtorg við Kjarnagötu. Lenging Dalsbrautar er um 800 metrar en í tillögunni er einnig gert ráð fyrir jarðvegsmönum, gönguljósum og göngu- og hjólreiðastígum.

Með auglýsingu þessari falla jafnframt úr gildi tvö eldri deiliskipulög innan skipulagssvæðisins ásamt síðari breytingum. Þau eru eftirfarandi:
Grenilundur (Kjarrlundur og Barrlundur), uppdráttur samþykktur af Skipulagsstjóra ríkisins 5. ágúst 1993.
Þrastarlundur, greinargerð og uppdráttur samþykktur af Skipulagsstjóra ríkisins 12. september 1995.

Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 37.-42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eins og skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar,

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála


Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 08:50
+8.5°SA 4 m/s
  • Skipulagsdeild - hausmydnir

    Skipulagsdeild Akureyrarbæjar

    Skipulagsdeild hefur á hendi daglega stjórnun skipulagsmála, umferðarmála, byggingamálefna, umhverfisskipulags og landfræðilegs upplýsingarkerfis Akureyrarbæjar (LUKA).

 

Þú breytir fætinum í stillingum