NR. 1055/2011 auglýsing um breytingu á deiliskipulagi, Naustahverfi 1. áfangi, Hamratún 22-24.

Breyting á deiliskipulagi, Naustahverfi 1. áfangi, Hamratún 22-24.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. október 2011 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi 1. áfanga, Hamratún 22-24.
Breytingin felur í sér að einni lóð undir 2ja hæða fjölbýlishús er skipt upp í tvær lóðir. Núverandi hámarksíbúðafjöldi á óskiptri lóð er 8 íbúðir og verður 4 íbúðir á hvorri lóð, (samtals 8 íbúðir á báðum lóðum). Núverandi byggingarreit, stærð 12 x 52, er skipt upp og verður 12 x 18 á hvorri lóð. Leyfð hámarksstærð húss á núverandi lóð er 1.244 m² og verður 622 m² á hvorri lóð.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.