Eitt af markmiðum samfélags- og mannréttindadeildar er að leitast við að gera öllum börnum og unglingum kleift að sækja tómstundastarf að skóladegi loknum. Skráning og greiðsla á námskeiðin fer fram hjá riturum skólanna. Námskeiðin fara fram í grunnskólunum og í Rósenborg alla virka daga frá kl. 15-22.
Mikilvæg gildi sem liggja til grundvallar félags- og tómstundastarfi eru að efla og þroska einstaklinginn. Leitast er eftir að ráða fag- og listafólk sem kennara á námskeiðin.
Forstöðumaður tómstundamála er Bergljót Jónasdóttir
Sími 460-1238, bergljot@akureyri.is
Starfsskrá tómstundamála 2010.

