Heimasíða Punktsins sjá hér.
Námskeið vorönn 2012
Skráning í síma
4601244 eða á netfangið punkturinn@akureyri.is
Að breyta fötum, dagnámskeið.
Kennari:
Ragney Guðbjartsdóttir myndlistakona.
Tími: 13., 20. og 27. mars, þriðjudagar, frá kl. 13 -15. 3 skipti.
Verð: 5000.-
Lýsing: þrengja, víkka,síkka, skeyta , breyta og bæta ;) ...eiga ekki allir nóg af fötum sem gaman væri að breyta!!
Að þora í sögina, örstutt
dagnámskeið.
Kennari: Sigtryggur Gíslason , umsjónarmaður smíðastofu.
Tími:Í boði alla daga í febrúar nema miðvikudaga, tími ákv. í samráði við kennara.
Verð: 1500.- fyrir 2 klst.
Lýsing: Stutt námskeið þar sem farið er yfir þær vélar og tæki sem eru til afnota á smíðastofu Punktsins.
Einnig er sýnt hvernig rennibekkurinn virkar. Viðkomandi á svo auðveldara með að koma og vinna sjálfstætt á Punktinum en þó alltaf
undir eftirliti starfsmanns.
Bókagerð, kvöldnámskeið.
Kennari: Einar Arnar
Magnússon grafískur hönnuður.
Tími: 5. og 12. mars, mánudagskvöld frá kl. 18.30 – 21.30. 2 skipti.
Verð: 9500.-
Lýsing: Gerðar eru tvær bækur. Kennt er að búa til aðra bókina alveg frá grunni og svo verður gamalli bók breytt í
skyssubók.
Aðferðin heitir Koptískt bókband og var fundin upp og þróuð af Koptum sem voru uppi á 2. öld e.kr. og var aðferðin notuð allt til 11. öld. Hugtakið, þ.e. koptískt bókband er einig notað yfir nútíma
bókbandsaðferð í sama stíl.
Allt efni innifalið.
Brjóstsykur, kvöldnámskeið.
Kennari: Eygló Antonsdóttir myndlistakona.
Tími: 26. mars, mánudagskvöld, kl. 20 – 21.30. 1 skipti.
Verð: 3500.-
Lýsing: Þú lærir að gera brjóstsykur og prófa hinar ýmsu bragðtegundir.
Drottinn blessi heimilið, útsaumuð mynd.
Kennari: Margrét Baldursdóttir handverkskona.
Tími: 26. mars, 4.apríl og 11. apríl, mánudags og miðvikudagskvöld kl. 17.15 – 20.15. 3 skipti.
Verð: 15.000.-
Lýsing: Gömlu útsaumsmyndirnar „Drottinn blessi heimilið“ hafa verið eftirsóttar undanfarin ár. En langar þig ekki að sauma
út þína eigin mynd og læra í leiðinni ýmislegt í útsaumi?
Efni, munstur og garn innifalið.
Fluguhnýtingar, kvöldnámskeið.
Kennari: Rúnar
Þór Björnsson ljósmyndari og áhugamaður um stangveiði.
Tími: 16., 23. og 30. apríl, mánudagskvöld, kl. 19 - 21. 3 skipti.
Verð: 9500.-
Lýsing: Þú lærir fyrstu handtökin í fluguhnýtingum. Gerðar eru einfaldar en veiðilegar flugur sem hægt verður að nota í
vor.
Allt efni innifalið.
Fuglar, unnið með ull, vír, greinar og grjót.
Kennari: Eygló Antonsdóttir myndlistakona.
Tími: 13. og 20. mars , þriðjudagskvöld kl. 19 – 22. 2 skipti.
Verð: 7500.-
Lýsing: Fuglarnir eru þæfðir úr ull og notað með ýmiss efni s.s. tálgað tré, steinar, vírar og fleira. Margir
möguleikar á útfærslu.
Frjáls útsaumur á saumavélina þína.
Kennari: Sveina Björk
Jóhannesdóttir textílhönnuður.
Tími: 6.febrúar, mánudagskvöld kl.18- 22. 1 skipti.
Verð: 7500.-
Lýsing: Viltu ná meiru út úr saumavélinni þinni?
Lærðu einfaldan útsaum á “ venjulega” saumavél. Farið verður yfir grunnaðferðir í frjálsum útsaumi og
gerðar tæknipufur sem nýtast til áframhaldandi vinnu. Þetta námskeið er fyrir þá sem eru vanir að sauma og vantar og langar í
meiri tækni.
Fatasaumur, byrjendur .
Kennari: Halldóra Sævarsdóttir textílkennari.
Tími: 13., 20., 27. feb. og 5. mars, mánudagskvöld kl. 18 – 22. 4 skipti.
Verð: 18.000.-
Lýsing: Grunnnámskeið í saumum. Nemendur koma með sína eigin saumavél og bókina sem fylgir.
Farið er yfir öll helstu atriði saumaskapar, kennd öll spor, að gera hnappagat og ýmislegt fleira. Tekið mál, snið tekin upp úr blöðum og
flík saumuð.
Fatasaumur, framhald.
Kennari: Halldóra Sævarsdóttir
textílkennari.
Tími: 16., 23., 30.apríl og 7. maí, mánudagskvöld kl. 18 – 22. 4 skipti.
Verð: 18.000.-
Lýsing: Saumaðar eru flóknari flíkur eftir sniðum sem tekin eru upp úr blöðum.
Glermótun, dag og kvöldnámskeið
NÁNAR AUGLÝST SÍÐAR.
Við skrifum niður á biðlista. Þeir sem þegar voru á lista fyrir áramótin ganga fyrir.
Haldið í hefðirnar, ýmsar útsaumsaðferðir
.
Kennari: Margrét Baldursdóttir handverkskona.
Tími: 12., 14., 19. og 21. mars, mánudaga og miðvikudaga kl. 17.15 – 20.15. 4 skipti.
Verð: 15.000.-
Lýsing: Þú lærir og útbýrð prufur af harðangurs og klaustursaumi, venesískum saumi , enskum og frönskum ásamt refilsaumi.
Allt efni innifalið.
Heklað af hjartans list, dagnámskeið.
Kennari: Ragney Guðbjartsdóttir myndlistakona.
Tími: alltaf á fimmtudögum frá kl. 13 - 15. Gott að skrá sig áður.
Verð: 800.- Borgað fyrir hvert skipti.
Lýsing: Lærir grunninn í hekli og gerir ýmsar prufur.
Garn og heklunálar á staðnum.
Körfugerð, unnið með tágar, dag og
kvöldnámskeið
Kennari: Margrét Baldursdóttir handverkskona.
Tími: 21. og 28. febrúar , þriðjudagsmorgnar frá kl. 9.30 – 12.30. 2 skipti.
eða 18. og 25. apríl, miðvikudagskvöld frá kl. 17.15 – 20.15. 2 skipti.
Verð: 10.500.-
Lýsing: Gerðar eru tvær( jafnvel þrjár) körfur. Notaðar flatar tágar og tveir hringir og í ívaf er notað m.a. litaðar tágar,
snæri og garn, allt eftir smekk hvers og eins.
Allt efni innifalið.
Kransagerð, unnið m.a. með vír og
perlur.
Kennari: Sirrý Örvarsdóttir textílhönnuður.
Tími:2. apríl, mánudagskvöld frá kl. 18 – 22. 1 skipti.
Verð: 10.000
Lýsing: Útbúnir fallegir kransar úr vír sem hægt er að skreyta á ýmsa vegu. Tilvalið að skreyta þennan með
páskaskrauti og breyta svo yfir í sumarlegan krans og svo koll af kolli.... A
Efni í grunnkransinn, vír og perlur innifalið. Hægt að kaupa fjaðrir og fleira páskaskraut á staðnum eða tilvalið að koma með
eigið skraut.
Leirmótun, dag og kvöldnámskeið
Kennari:
Sigríður Ágústsdóttir leirkerasmiður.
Tími: 7. 14. 21. og 28. febrúar þriðjudagsmorgnar frá kl. 10 – 12.30 4 skipti.
eða 27. febrúar, 5. 12. 19. mars, mánudagskvöld frá kl. 17 – 19.30 4 skipti.
Verð: 17.000.-
Lýsing: Kennd eru undirstöðuatriði í leirmótun. Skreytingar og litanotkun.
Efni og brennsla innifalið.
Perludýr, fylgihlutir , dag og kvöldnámskeið.
Kennari: Marta Kusinska myndlistakona.
Tími: 9. 16. og 23. mars, föstudagsmorgnar kl. 11.30- 13.30. 3 skipti.
eða 13. og 20. mars, þriðjudagskvöld frá kl. 19 – 22. 3 skipti.
Verð: 6500 á dagnámskeið., 7500 á kvöldnámskeið.
Lýsing: Fyrst gera allir sama perludýrið og læra aðferðina. Síðan frjálst 1 -2 dýr í viðbót. Litlar fígúrur
sem nota má sem skraut á síma, lyklakippu, jafnvel hægt að gera eyrnalokka eða hálsmen.
Allt efni innifalið.
Perluofin armbönd með roði.
Kennari: Marta Kusinska myndlistakona.
Tími: 10. og 17. apríl, þriðjudagskvöld frá kl. 19 22. 2 skipti.
Verð: 7500.-
Lýsing: Búin eru til einstaklega falleg armbönd þar sem munstur er ofið með perlum og svo fest á roð.
Allt efni innifalið.
Rugguhestasmíði, kvöldnámskeið
Kennari:
Sigtryggur Gíslason handverksmaður.
Tími: 30. jan. 6. 13. og 20. febrúar, mánudagskvöld frá kl. 18 – 21. 4 skipti.
Verð: 10.000.-
Lýsing: Smíðaður er ákv. gerð af rugguhesti og svo geta þátttakendur málað hann og skreytt eftir eigin höfði.
Efni í hestinn innifalið. Þátttakendur kaupa sjálfir málningu.
Skartgripagerð, ýmsar aðferðir.
Kennari: Inga Björk Harðardóttir myndlistakona og gullsmiður.
Tími: 14. og 21. mars, miðvikudaga frá kl. 17.15 – 20.15. 2 skipti.
Verð: 10.500.-
Lýsing: Þú lærir réttu handtökin, býrð til festar og eða lokka. Notaðar eru perlur og steinar, vírar, leðurólar, girni ,
bling og fleira. Einnig hægt að saga út úr málmum.
Allt efni innifalið.
Tauþrykk, byrjendur,
kvöldnámskeið.
Kennari: Sveina Björk Jóhannesdóttir textílhönnuður.
Tími: 19. og 26. mars, mánudagskvöld frá kl. 18.30 – 21. 30. 2 skipti.
Verð: 12.500.-
Lýsing: Þú lærir á notkun litanna, að finna og skera út munstur og yfirfæra á ramma. Þrykktar eru prufur og í seinna skiptið
er þrykkt á bol og tösku. ATH. það er gott að vera aðeins búin að velta fyrir sér hvernig munstur þig langar að
gera, jafnvel koma með hugmyndir á blaði eða úr blaði.
Litir, bolur, taska og prufuefnin innifalið í verðinu.
Tálgun, byrjendur, kvöldnámskeið.
Kennari: Ómar Þór Guðmundsson smíðakennari.
Tími: 19., 26., 28. mars, mánudags og miðvikudagskvöld kl. 17.30 - 19.30.
Verð: 6500.-
Efni og lán á hnífum innifalið.
Vettlinga og sokkaprjón, dagnámskeið.
Kennari: Ragney Guðbjartsdóttir myndlistakona.
Tími: 7. 14. 21. 28. febrúar, þriðjudagar frá kl. 13 – 15. 4 skipti.
Verð: 6500.-
Lýsing: Koma með prjóna nr. 3.5 eða 4.0 og garn sem passar við. Þú velur að prjóna annaðhvort vettlinga eða sokka eða
bæði ef vel gengur;)
Þæfðir fylgihlutir, kvöldnámskeið.
Kennari: Margrét Steingrímsdóttir handverkskona.
Tími: 27. febrúar og 5. mars, mánudagskvöld frá 19 – 22. 2 skipti.
Verð: 9500.-
Lýsing: Þú lærir að nota ullina og hvernig hún virkar. Hægt er að velja um að þæfa inniskó, vettlinga,
húfu, handstúkur eða kraga. Gerðir eru 2 -3 hlutir.
Allt efni innifalið.

