Hlutverk þeirra sem starfa að tómstunda- og félagsmálum handverksmiðstöðvarinnar er að taka þátt í að efla og þroska
einstaklinga til þátttöku í samfélaginu. Aðalmarkmið Punktsins er að gera fólki kleift að sækja námskeið hjá fag-
eða listafólki og fá undirstöðuatriði í þekkingu á hverskonar handverki sem verið er að bjóða uppá ásamt
því að bjóða upp á opna vinnuaðstöðu til handverksiðkunar. Eftir að námskeiði lýkur er auðveldara fyrir einstaklinginn
að sækja opið starf á Punktinum á opnunartíma, að nýta sér aðstöðuna og hefja sjálfstæð vinnubrögð en hann
mun að sjálfsögðu áfram geta fengið leiðsögn og hverskonar aðstoð hjá starfsfólki Punktsins.
Punkturinn hefur einnig verið ákveðið úrræði fyrir hina ýmsu hópa sem eru að fóta sig að nýju úti á
vinnumarkaðnum og tekur Punkturinn á móti hópum í samstarfi við Starfendurhæfingu Norðurlands, Rauða krossinn, Símey, Menntasmiðjuna og
fleiri. Mikilvæg gildi sem liggja til grundvallar félags- og tómstundastarfi er að efla og þroska einstaklinginn óháð aldri. Reynslan hefur sýnt
að hlutverk Punktsins er mikilvægt og styrkir sjálfstraust þess sem hefur misst starfsgetu af ýmsum orsökum. Mikilvægt er að vel sé staðið
að félags- og tómstundastarfi það getur kveikt hugmyndir að framhaldsnámi og jafnvel framtíðarstarfi og getur því virkað sem
starfskynning fyrir einstaklinginn ef vel er að málum staðið. Starfsfólk veitir upplýsingar, fræðslu og ráðgjöf eftir bestu getu og kemur
á tengslum við aðra fagaðila er tengjast handverki.
Það eru óþrjótandi möguleikar á Punktinum, húsakynnin og öll aðstaða er mjög góð og í boði er gler-og
mósaíkvinnustofa, leirmótun, saumastofa, prjón og hekl, þæfing, þrykk, skartgripagerð, vefnaður, prjónavél,
leðursaumavélar og frábær smíðastofa.
Rósenborg
Skólastíg 2, 600 Akureyri, s. 460-1230
Verið velkomin á heimasíðu Rósenborgar.
Rósenborg er aðsetur samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar. Margvísleg starfsemi fer fram í húsinu sem ber undirtitilinn möguleikamiðstöð.

