Frá hugmynd til framkvæmda
Námskeiðið Frá hugmynd til framkvæmda er samstarfsverkefni Ungmenna-Hússins og Vinnuskólans og eitt af þeim tilboðum sem ungu fólki án atvinnu stendur til boða. Námskeiðið fór af stað í febrúar.
Um er að ræða 6 vikna námskeið í samvinnu við Vinnumálastofnum og er það hluti af átakinu Ungt fólk til athafna. Ætlunin með þessu námskeiði er sú að gefa ungu skapandi fólki tækifæri til að skapa sér verðmæti úr hugmyndum sínum og geta þannig verið sínir eigin atvinnurekendur.
Í Ungmenna-Húsi hafa verið starfandi skapandi hópar sem hafa getað selt vinnu sína en hér er hugmyndin að kenna ungu fólki hagnýt vinnubrögð í skapandi vinnu.
Tilgangur námskeiðsins er að efla og styrkja skapandi og gagnrýna hugsun og leggja ungu fólki til verkfæri til að geta unnið áfram með hugmyndir sínar. Megin áhersla er á heimspeki og listsköpun og hvernig vinna skal með hugmynd til framkvæmdar.
Lykilorð eru: tækifæri og hindranir, frá hugmynd til framkvæmdar og að vera sinn eigin verkstjóri.

