Hádegisverðarfundur um jafnréttismál
Kvennafrídagurinn er laugardaginn 24. október og af því tilefni bjóða Akureyrarbær og Jafnréttisstofa til hádegisverðarfundar föstudaginn 23. október á Hótel KEA frá kl. 12.00-13.30. Fjallað verður um jafnréttismál á Akureyri og jafnréttisfræðslu í leik- og grunnskólum.
Dagskráin er svohljóðandi:
12.00: Fundur settur.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar.12.10: Jafnréttismál á Akureyri.
Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri.12.25: Þróunarverkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum.
Arnfríður Aðalsteinsdóttir, verkefnisstjóri á Jafnréttisstofu.12.40: Jafnrétti kynjanna, náms- og starfsfræðsla.
Guðrún Brynja Sigurðardóttir, kennari í Lundarskóla.12.55: Það læra börnin sem fyrir þeim er haft.
Helga María Þórarinsdóttir, leikskólakennari í Lundarseli.13.10: Umræður.
13.30: Fundarlok.
Boðið verður upp á kaffi og samlokur. Allir eru hjartanlega velkomnir.

