Rósenborg

Verið velkomin á heimasíðu Rósenborgar.
Rósenborg er aðsetur samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar. Margvísleg starfsemi fer fram í húsinu sem ber undirtitilinn möguleikamiðstöð.

Fréttir

Forvarnir gegn kynferðisofbeldi

5.10.2009

Samfélags- og mannréttindadeild bauð í síðustu viku öllum foreldrum grunnskólabarna sem og starfsfólki sem vinnur með börnum og unglingum upp á fyrirlestur um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi. Fyrirlesarar voru Sigríður Björnsdóttir og Ingólfur Vilhelmsson hjá Blátt áfram.

Forvarnaverkefnið Blátt áfram var kynnt sem og leiðir til að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Leitað var svara við spurningunum: Hver eru merkin? Hvert á að leita hjálpar? Af hverju segja börnin ekki frá? Hvernig og af hverju á ég að tala um þetta við börnin?

Gréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi hélt utan um fundinn.



Senda grein





Útlit síðu:

Haus_Rosenborg1

Þetta vefsvæði byggir á Eplica