Ungmennahús, upplýsinga- og menningarmiðstöð á krepputímum
Á krepputímum er félagsauðurinn það dýrmætasta sem við eigum. Það hefur sannast í Ungmenna-Húsinu í Rósenborg á undanförnum mánuðum. Frá janúar til maí hafa heimsóknir í Húsið verið rúmlega 5000. Hafa ungmennin komið í Húsið í leit að afþreyingu, aðstoð og athvarfi. Sá hópur sem sækir Ungmenna-Húsið hefur farið stækkandi og segja má að sprenging hafi orðið í aðsókn eftir að kreppan skall á. Í Ungmenna-Húsinu er fjölbreytt aðstaða til afþreyingar s.s. æfingaraðstaða fyrir hljómsveitir, tölvuver, tæki til upptöku tónlistar, einnig er vinsælt að nota breiðtjald til að fara í tölvuleiki og svo er aðstaða til að spjalla og horfa á sjónvarp. Í vetur hefur verið boðið upp á fjölda tónleika, ljóðakvöld, fataþrykk, brettamót, brettabíó, hljómsveitakeppni og fjölbreytt klúbbastarf svo eitthvað sé nefnt. Tveir hópar fatlaðra ungmenna hafa aðstöðu í Ungmenna-Húsinu yfir veturinn og stóðu þau m.a. fyrir dansleik í Húsinu í vetur. Samstarf er við framhaldsskólana og einnig aðstoðaði starfsfólk Ungmenna-Hússins við samlistarverkefnið Valhallabank. Samvinna hefur verið við Vinnumálastofnun og kynningar verið fyrir unga atvinnuleitendur og aðstoð við gerð ferilskráa. Engin kostnaður er fyrir ungmennin að nýta aðstöðuna og einungis er rukkað lágmarksgjald ef um viðburði er að ræða.
Ljóst er að mörg þeirra ungmenna sem sækja Ungmenna-Húsið eru að leita eftir spjalli við starfsfólkið og njóta þess að vera á “hlutlausu” svæði.
Til þess að takast á við ný verkefni og auknar kröfur samfara breyttu þjóðfélagi hefur starfsfólk Ungmenna-Húss verið að þróa ráðgjafarþátt starfseminnar. Ætlunin er að ungmenni geti sótt sér stuðning og ráðgjöf er varðar áfengi og vímuefni, fjármál, kynlíf og kynsjúkdóma og starfsráðgjöf. Einnig er ætlunin að foreldrar geti leitað eftir aðstoð vegna ungmenna sinna. Þessi nýja þjónusta í Ungmenna-Húsinu fer formlega af stað í haust. Þegar efnahagsástand er slæmt geta börn og ungmenni orðið illa úti. Þessi hópur er mjög viðkæmur fyrir breytingunum í þjóðfélaginu. Börn og ungmenni skynja áhyggjur úr umhverfinu og hafa sjálf áhyggjur af fjölskyldu sinni. Algengast er að þau reyni að hlífa fjölskyldum sínum með því að láta sem ekkert sé og láta lítið fyrir sér fara. Ungmenna-Húsið er því mikilvægur staður fyrir þau til að leita í til þess að geta mögulega rætt málin eða létt af sér áhyggjum.
Húsið er opið alla daga vikunnar nema sunnudaga frá kl. 16:00 til 22:00.

