Virkið Rósenborg
UFTA, ungt fólk til athafna er samstarfsverkefni Rauða krossins, Akureyrarbæjar og Vinnumálastofnunar. Verkefnið hefur fengið nafnið Virkið og er tilgangur þess að virkja unga atvinnuleitendur til aukinnar þátttöku í samfélaginu.
Í Virkinu koma saman ungmenni í atvinnuleit og eiga að sila 10 klukkutímum í virkni á viku. Virknin felst í klúbbastarfi, þátttöku í námskeiðum, fyrirlestrum og að sinna áhugamálum.
Það er skylda að skrá sig í klúbb og þarf að skila virkni í honum að lágmarki sex klukkustundir á viku, hinar fjórar klukkustundirnar hefur einstaklingurinn meira val um hvað hann/hún vill gera.
Skráning í klúbba er bindandi. Einstaklingurinn ber sjálfur ábygrð á að skila umbeðnum fjölda klukkustunda á viku, að lágmarki sex klukkustundum í klúbbastarf og það sem upp á vantar í 10 klukkustunda virkni á viku má fara í annað. Þeir einstaklingar sem ekki ná tilskyldum tímafjölda verða að skila skýringum til ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun.
Einstaklingurinn ber sjálfur ábyrgð á að þátttaka hans/hennar sé skráð á þar til gerð blöð. Einnig ber hann/hún ábyrgð á að láta vita um veikindi eða önnur forföll eins og um atvinnu væri að ræða. Biðja verður um leyfi með fyrirvara ef viðkomandi þarf að fá frí vegna einhverra aðstæðna.
Ungmennin fá aðstoð við atvinnuleit og eftirfylgni. Farið verður með þeim yfir hvaða fyrirtæki eru í bænum og hvernig ber að hafa sér í atvinnuleit. Þau fá hjálp við gerð ferilskrár og verður lögð áhersla á hversu mikilvægt það er að vera með góða ferilskrá. Farið verður yfir atvinnuviðtöl, hvað er góð framkoma og hvað ekki.
Einstaklingur getur komið með hugmyndir að klúbbi sem hann/hana langar að stofna, það þarf að lágmarki fimm einstaklinga til að stofna klúbb. Ætlast er til þess að klubbfélagar vinni sjálfstætt, en geta fengið aðstoð hjá starfsmönnum Virkisins. Til dæmis klúbbfélagar í handverksklúbb myndu skipuleggja hvernig þeir útvega hráefni til að vinna úr, þeir hafa aðstöðu á Punktinum og geta leitað til starfsmanna þar eftir aðstoð.
Á Punktinum er líka hægt að sækja námskeið í ýmsu handverki sem yrði metið sem virkni, en þó ekki nema námskeiðið sé á dagvinnutíma.
Boðið verður upp á fyrirlestra á föstudögum og er skyldumæting á þá.
Heilsuklúbburinn fær að æfa frítt milli kl. 10-12 alla virka daga á Bjargi og á sama tíma á þriðjudögum og miðvikudögum hjá Átaki Skólastíg.
Ekki er leyfilegt að vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna á staðnum eða í verkefnum tengdum UFTA verkefninu.

