Á grunni Menntasmiðju kvenna sem rekin var frá árinu 1994 er starfrækt kvennasmiðja. Smiðjan er rekin af Starfsendurhæfingu Norðurlands samkvæmt samningi við Akureyrarbæ.
Í ágúst 2008 gerði Akureyrarbær samning við Starfsendurhæfingu Norðurlands ehf. um rekstur og umsjón með Menntasmiðju kvenna. Meginmarkmið samningsins er að tryggja öfluga starfsemi Menntasmiðju kvenna og tengsl við önnur tilboð á vegum Starfsendurhæfingar Norðurlands. Samningurinn hefur nú verið endurnýjaður og sú breyting gerð á heiti námsleiðarinnar að hún kallast nú kvennasmiðja.
Menntasmiðja kvenna hófst sem þróunarverkefni haustið 1994 með það að markmiði að skapa skóla með innihaldi og andrúmslofti sem gæfi konum án atvinnu nýjan grunn að byggja á í lífi og starfi. Hugmyndafræði Menntasmiðju kvenna var sótt til kvennadagháskóla á Norðurlöndunum, en þeir byggja á sömu hugmyndafræði og lýðháskólar þar sem kennd er lífshæfni.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands í síma 420-1020 www.stn.is

