Jafnréttismál

Jafnréttisráðgjafi sér um framkvæmd og eftirfylgni við jafnréttisstefnu Akureyrarbæjarí samvinnu við samfélags- og mannréttindaráð og bæjaryfirvöld.

Hlutverk ráðgjafans er að veita stofnunum og starfsfólki bæjarins fræðslu og ráðgjöf um hvaðeina sem snertir jafnréttismál kynjanna, m.a. samþættingu jafnréttisstarfs við starfsemi bæjarins. Jafnréttisráðgjafi hefur einnig umsjón með úttektum og rannsóknum á stöðu og kjörum kynjanna í bæjarkerfinu.

Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdasjóri samfélags- og mannréttindadeildar gegnir starfi jafnréttisráðgjafa.

Sími 460-1236, katrinb@akureyri.is

 

Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015