-áður menntasmiðja unga fólksins -
Í vetur verður í boði ný þjónusta við ungt fólk. Markmið verkefnisins er að virkja það fólk sem er utan skóla og í atvinnuleit og þarf á sérstökum stuðningi að halda til að nýta þau úrræði til virkni sem í boði eru. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við m.a. Vinnumálastofnun, fjölskyldudeild, Fjölsmiðjuna, Iðngarða, Vinnuskóla og aðra þá aðila sem bjóða upp á verkefni fyrir ungt fólk sem illa hefur gengið að fóta sig í vinnu og námi, hvort sem er innan framhaldsskólanna eða í öðrum námstilboðum sem í boði eru.
Upplýsingar veitir Orri Stefánsson verkefnastjóri s. 460-1233, orri@akureyri.is

