Fréttamolar frá félagsmiðstöðvunum

Fréttamolar frá félagsmiðstöðvunum Tveir nýjir starfsmenn hafa bæst í hóp starfsmanna félagsmiðstöðvanna um áramótin og aukið hefur verið við þjónustu

Flýtilyklar

Fréttamolar frá félagsmiðstöðvunum

Nokkrar mannabreytingar urðu hjá félagsmiðstöðvunum nú um áramótin. Helga Ingadóttir og Óðinn Óðinson bættust í hópinn og munu þau starfa í félagsmiðstöðinni Tróju. Guðný Lára starfsmaður Himnaríkis lét af störfum og hélt erlendis og tók Dagný Björk við hennar starfi, en hún var áður í Tróju. Félagsmiðstöðvarnar vilja nota tækifærið og þakka Guðnýju fyrir hennar störf og óska henni velfarnaðar í nýju starfi og í nýju landi.

Síðdegisopnanir félagsmiðstöðvanna voru illa nýttar í öllum skólunum og tók sú tilraun enda nú um áramótin. Í staðinn kemur inn meiri þjónusta við miðstigið, en nú er farinn í gang 7. bekkjarklúbbur í öllum skólunum, sem verður einu sinni til tvisvar í viku.


Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 08:24
+8.5°SA 4 m/s
  • Rosenborg - hausmynd

    Rósenborg

    Skólastíg 2, 600 Akureyri, s. 460-1230

    Verið velkomin á heimasíðu Rósenborgar.
    Rósenborg er aðsetur samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar. Margvísleg starfsemi fer fram í húsinu sem ber undirtitilinn möguleikamiðstöð.

 

Þú breytir fætinum í stillingum