Forvarnir
Umsjónarmaður forvarna á Akureyri skal stuðla að heilbrigðum lífsvenjum barna og ungs fólks í samræmi við stefnumörkun bæjarfélagsins í forvarnamálum. Starf umsjónarmanns felur í sér utanumhald forvarnaverkefna og framkvæmd þeirra ásamt umsjón með framkvæmd forvarnastefnu. Samstarf er mikilvægur þáttur í starfinu og er umsjónarmaður í samstarfi við grunnskóla, framhaldsskóla, félagsmiðstöðvar, ungmenna- Hús, lögreglu, heilsugæslu og fjölskyldudeild. Situr í Samanhóp fyrir hönd Akureyrarbæjar. Umsjónarmaður heldur saman upplýsingum um starfsemina og stöðu forvarnamála.
Forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála er Alfa Aradóttir, sími 460-1237, alfaa@akureyri.is
Umsjónarmaður forvarna er Gréta Kristjánsdóttir, sími 460-1243, gretak@akureyri.is
Starfsskrá um starfsemi félagsmiðstöðva, Ungmenna-Húss og umsjónarmanns forvarna
Forvarnastefna bæjarins er í endurskoðun.
Hér má finna aðgerðaáætlun 2009-2010: 0-5 ára, 6-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára, 16-25 ára.
Fyrirlestur - Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi
Fyrirlesturinn er ætlaður öllum sem vinna með börnum og unglingum og einnig foreldrum og öðrum sem bera ábyrgð á börnum. Rætt er um forvarnarverkefnið Blátt áfram og hvernig hægt er að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Svarað verður spurningum eins og: Hver eru merkin? Hvert á að leita hjálpar? Af hverju börnin segja ekki frá? Hvernig og af hverju á ég að tala um þetta við börnin? Fyrirlesturinn ásamt umræðum tekur 1-2 klst. Verð kr. 5000.
Verndarar barna
Forvarnafulltrúi stendur fyrir námskeiðunum Verndarar barna. Námskeiðin eru ætluð öllum sem koma að starfi með börnum og unglingum hvort sem er hjá stofnunum, fyrirtækjum eða félagasamtökum. Námskeiðið stendur foreldrum einnig til boða. Sjá upplýsingar hér. Hafið samband við Grétu forvarnafulltrúa ef óskað er eftir námskeiði.
Bella
Forvarnafulltrúi ásamt fulltrúum frá Blátt áfram bauð nýlega starfsfólki bæjarins upp á Bella námskeið með það að markmiði að vinna að eflingu sjálfsstyrks hjá stúlkum á grunnskólaaldri. Upplýsingar um Bella má finna hér. Einnig veitir Gréta forvarnafulltrúi frekari upplýsingar.
ÞOR
Lífsleikniverkefnið ÞOR (þú og raunveruleikinn) er unnið mað öllum 5. bekkjum grunnskólanna á Akureyri í samstarfi forvarnafulltrúa og Lögreglunnar á Akureyri. Sjá nánar hér.

