Forvarnir

Forvarnafulltrúi Akureyrarbæjar skal stuðla að heilbrigðum lífsvenjum barna og ungs fólks í samræmi við stefnumörkun bæjarfélagsins í forvarnamálum.

Flýtilyklar

Forvarnir

Forvarnafulltrúi Akureyrarbæjar skal stuðla að heilbrigðum lífsvenjum barna og ungs fólks í samræmi við stefnumörkun bæjarfélagsins í forvarnamálum. Starf forvarnafulltrúa felur í sér utanumhald forvarnaverkefna og framkvæmd þeirra ásamt umsjón með framkvæmd forvarnastefnu. Víðtækt samráð er um forvarnastarfið og fjölmargir sem gegna hlutverki í forvarnavinnunni. Samstarf er m.a. við grunnskóla, framhaldsskóla, félagsmiðstöðvar, Ungmenna- Hús, lögreglu, heilsugæslu og fjölskyldudeild. Nánari verkaskiptingu má sjá í aðgerðaáætlun hér fyrir neðan.

Forvarnafulltrúi er Gréta Kristjánsdóttir, sími 460-1243 gretak@akureyri.is

Starfsskrá forvarna- og æskulýðsmála 2010
Reglur vegna unglingadansleikja


Forvarnastefna Akureyrarbæjar

Hér má finna aðgerðaáætlun 2011-2013: 0-5 ára, 6-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára, 16-20 ára

Fyrirlestur - Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi

Fyrirlesturinn er ætlaður öllum sem vinna með börnum og unglingum og einnig foreldrum og öðrum sem bera ábyrgð á börnum. Rætt er um forvarnarverkefnið Blátt áfram og hvernig hægt er að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum.  Svarað verður spurningum eins og: Hver eru merkin?  Hvert á að leita hjálpar? Af hverju börnin segja ekki frá? Hvernig og af hverju á ég að tala um þetta við börnin? Fyrirlesturinn ásamt umræðum tekur 1-2 klst. Verð kr. 5000. 

Verndarar barna
Forvarnafulltrúi stendur fyrir námskeiðunum Verndarar barna. Námskeiðin eru ætluð öllum sem koma að starfi með börnum og unglingum hvort sem er hjá stofnunum, fyrirtækjum eða félagasamtökum. Námskeiðið stendur foreldrum einnig til boða. Sjá upplýsingar hér. Hafið samband við Grétu forvarnafulltrúa ef óskað er eftir námskeiði.

Bella
Forvarnafulltrúi ásamt fulltrúum frá Blátt áfram bauð nýlega starfsfólki bæjarins upp á Bella námskeið með það að markmiði að vinna að eflingu sjálfsstyrks hjá stúlkum á grunnskólaaldri. Upplýsingar um Bella má finna hér. Einnig veitir Gréta forvarnafulltrúi frekari upplýsingar.

ÞOR

Lífsleikniverkefnið ÞOR (þú og raunveruleikinn) er unnið mað öllum 5. bekkjum grunnskólanna á Akureyri í samstarfi forvarnafulltrúa og Lögreglunnar á Akureyri. Sjá nánar hér.

Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 22.05. 2012
kl. 08:23
+8.5°SA 4 m/s
  • Rosenborg - hausmynd

    Rósenborg

    Skólastíg 2, 600 Akureyri, s. 460-1230

    Verið velkomin á heimasíðu Rósenborgar.
    Rósenborg er aðsetur samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar. Margvísleg starfsemi fer fram í húsinu sem ber undirtitilinn möguleikamiðstöð.

 

Þú breytir fætinum í stillingum